Loksins
Loksins, loksins er ég að druslast til að skrifa líka inn á íslenska dagbók hennar Önnu Xing. Ég ætla að gera þetta heðan af reglulega til að láta ykkur fylgjast með hvernig hún Anna Xing (og foreldrar og dýrin) hafa þetta í „útlöndum“, sem sagt í Austurríki.
En ég mun skrifa þetta á „susönnsku“ eins og vanalega þannig að ég byð ykkur um að lesa yfir öll mistökn og villur hjá mér og fyrirgefa mér leiðinlega íslensku mína.
En Anna Xing hefur það gott eins og stendur. Reyndar er hún farin að finna dálitið fyrir stressið í okkur, hún er að verða aðeins óöruggari og vanalega, vill láta halda meira á sér og fer minna frá mér. En það er svo sem mjög skiljanlegt í öllu þessu pakka og flutningavesin í okkur. Svo á þetta eftir að versna um helgina þegar við erum að setja allt okkar dót í gáminn. Á þriðjudaginn munum við svo kveðja Reykjavík og fara af stað austur en skipið fer á miðvikudagskvöld.
Svo, núna verð ég að halda áfram að pakka á meðan Anna Xing heldur hádegissvefnið sitt.
Category: Almennt-General, Dagbók Önnu