Fyrsta „setningin“
Í dag kom Anna Xing mér á óvart með því að segja fyrsta tveggja orða setningin sin: mama afel = Mama Apfel. Þetta gæti þydd: „mamma, vildu gjörðu svo vel og vera svo væn að láta mig fá epli“ eða „ég vil fá epli strax og hana nú!“. En að sjálfsögðu fékk hún strax eplið.
Og svo forum við í dag á róló sem er nú bara rétt hjá. Anna Xing labbaði allan leið þangað, á leiðinni heilsuðum við rollunum sem eiga heima þar og Anna Xing finnst þær mjög spennandi. En svo var það leikvöllurinn. Hún öskraði úr gleði þegar hún kom á svæðið og hlop um, hingað og þangað, renndi sig niður, prufaði öll tækin og vissi ekki alveg hvert hún átti að fara fyrst. Þarna er mjög löng rennibraut en Anna Xing varð líka að prufa hana – eins og stendur rennur hún sér alltaf niður á maganum, fætur fyrst. Og svo klifraði hún upp háan turn. Þarna var svona net, öruglega 30 – 40cm milli linurnar. En Anna Xing klifraði upp, hægt og rolega. Ég var tilbúin að gripa hana en hún var mjög örugg – en svo lendi hún í vantræðum með að komast aftur niður og þá var gott að kalla á mömmu.
Category: Almennt-General, Dagbók Önnu