Kjólastelpan

Í gær fekk Anna Xing 5 kjólar gefins af nágrannakona okkur en dóttir hennar er nokkrum mánuðum eldri og aðeins stærra og Anna Xing. Oh, stelpan er svo fín í þessum kjólum og alltaf þegar ég set hana í nýjan kjól (eða nýtt föt) þarf hún að sjá sig í spegill og brosir svo mjög ánægð. En að sjálfsögðu eru kjólana ekki lengi fínir og hreinir því að daman vill borða sjálf – jú, súpan líka – og er svo mikið úti í goða veðrinu. Það þarf nú detta bara einu sinni og kjólinn var hreint. Heima á Íslandi þá dugði eitt dress eða eina buxur oft í nokkrir dagar (þegar maður for út var maður í pollagallann) en hér dugar sama „outfit“ bara í hálfan dag hámark. En það er svo gaman að sjá hana hlaupa um í garðinum allan dag, hún finnur sér alltaf eitthvað að gera. En algjör uppáhaldið hjá henni er að fá að leika sér í bilnum. Ef hann stendur opið þá þarf ekki lengi leita að stelpunni. Þá er hún í bílstjórasætinu, annari hendi á styrinu en hinn er annaðhvort að fikta í útvarpstækinu, símann (ef hann stendur í handfrjálsa búnaðinn) eða á gírstönginni. Einar finnst þetta nú ekki verra hjá henni og er hann farinn að spá í bíll handa henni :-))

4 thoughts on “Kjólastelpan

  1. Hæ vinkona, ósköp er nú gott að geta litið á síðuna þína og séð hvað þú/þið eruð að bralla þarna í útlandinu.
    Við Berta Rögn og Hanna Steina hittumst á fimmtudaginn með mæðrunum og systkinum Hönnu Steinu. Veistu ég saknaði ykkar samveru :o(
    Í dag fórum við svo á Hreyfilandshitting og ég saknaði þín líka þar :o(
    Já, það er sko ótrúlegt hvað maður getur stundum verið snöggur að óhreinka sig. Ég klíndi einmitt smurolíu í fötin mín í dag, mamma var sko ekki kát með það. En veistu Anna Xing, ég held að við séum svolitlir grallarar og grallarar mega sko alveg óhreinka nokkur dress á dag.
    Hafðu það gott vinkona mín og skilaðu kveðju til foreldra þinna. Knús og kossar, Anna Bíbí (sem er löngu steinsofnuð) og foreldrarnir

  2. Það er greinilegt að Önnu Xing leiðist ekki og fer mikið fram – mikið er það gaman að heyra.
    Leikskólaaðlögun gengur ótrúlega vel á þessum bæ, mömmunni finnst reyndar svoldið erfitt að vera ekki ómissandi 🙂
    Hér var yndislegt sumarveður í dag og við mæðgur fórum í sund og skemmtum okkur vel.
    Bless í bili, Berta Rögn og mamma.

  3. Elsku Anna Xing, Susanne og Einar

    Innilega til hamingju með eins árs samveruafmælið sem er sannarlega búið að vera viðburðaríkt, skemmtilegt og umfram allt yndislegt.
    Njótið þess að halda upp á daginn saman og skilið kveðju til ömmu sem sannarlega á hluta í þessum degi með okkur öllum.

    Knús og kossar til ykkar í Austurríki og takk fyrir að leyfa okkur að njóta þessa árs með ykkur líka ;o) Anna Bíbí og foreldrarnir

  4. Elsku Anna Xing, Susanne og Einar,
    til hamingju með daginn í dag!
    Það er ótrúlegt að hugsa til þess að heilt ár sé liðið frá því við hittum yndislegu stelpurnar okkar og það hafa verið forréttindi að fá að fylgjast með Önnu Xing og öllum hinum þennan tíma og sjá þær vaxa og dafna og breytast í sjálfstæðar kjarnakonur 🙂
    Það verður gaman að lesa hvað þið hafið gert í tilefni dagsins. Við stilltum öllu í hóf en fengum okkur auðvitað Kínamat, hvað annað?!
    Bestu kveðjur til ömmu Gunde líka,
    bless, bless,
    Kristjana, Palli, Uni Dagur, Signý Pála og Hanna Steina.

    p.s. Mér gengur eitthvað illa að skrifa í gestabókina ykkar….
    – redda þessu bara hér!
    Kv. Kristjana.

Schreibe einen Kommentar

Diese Website verwendet Akismet, um Spam zu reduzieren. Erfahre, wie deine Kommentardaten verarbeitet werden.