2 thoughts on “Myndir / Photos

  1. Sæl Anna Xing og foreldrar.
    Ár liðið frá því við komum heim með stelpurnar okkar, ótrúlegt ;o)
    Við fórum í heimsókn til Bertu Ragnar í dag og þegar ég sagði Önnu Bíbí að hún væri að fara í heimsókn til Bertu, leit hún á mig með spurnaraugum og sagði „Anna Sín“. Já, hún saknar ykkar greinilega og tengir Önnu Xing við hinar stelpurnar.
    Yndislegt að geta litið í dagbókina og lesið nýjar fréttir af ykkur og FRÁBÆRT að sjá allar þessar myndir. Ég verð að finna góðan tíma með Önnu Bíbí á morgun og leyfa henni að skoða ;o)
    Annars fínt að frétta af Fróni, 10-12 stiga hiti í dag og barasta sól ;o)
    Hafið það gott og vonandi gengur pössunin vel, spurning að hafa Önnu Xing bara með sólgleraugu, bara svona til að verja augun.
    Knús í knús, Sigurbjörg, Axel og Anna Bíbí

  2. Halló Susanne, Einar og Anna Xing. Þetta eru frábærar myndir – takk fyrir að leyfa okkur að sjá hvernig allt er hjá ykkur. Mér sýnist þið hafa það super og Anna blómstar þarna enda frábærir leikgarðar sýnist mér.
    Jæja hef það ekki lengra í bili hafið það sem best.
    Bestu kveðjur
    Gyða, Kalli og Sigga Bára Min

Schreibe einen Kommentar

Diese Website verwendet Akismet, um Spam zu reduzieren. Erfahre, wie deine Kommentardaten verarbeitet werden.