Ömmustelpa
Nú er hún Anna Xing alsæl: amman er í heimsókn og með henni komu líka Gunna frænka og Kári frændi. Prinsessan hefur sem sagt 3 ömmur/afar til að leika við sig, til að dekra við sig og til að stjórna…. meira skal ekki um það segja. En núna vakna hún á morgnanna og byrja strax að kalla á „amma“, „káwa“ (=Kári) og „gunaa“ (=Gunna). Hún er svo hrífin af ömmu og Kára og Gunnu að hún leyfi okkur Einari jafnvel að fara í burtu – þetta hefur nú ekki gerst áður! Þetta er alveg frábært fyrir okkur Einar líka. Eintom hamingja hér á svæðinu sem sagt og lifið er bara gott, veðrið loksins líka.
Category: Almennt-General, Dagbók Önnu
æi, það er alltaf gott fyrir svona kríli að eiga ömmur og afa og ekki verra þegar það eru þessi þrjú sem um ræðir. Mikið óskaplega held ég alla vega að amman sé sæl enda var hún hálf vængbrotin þegar þið fluttuð í burtu:) Vona að öllum heilsist vel þarna úti í góða veðrinu. Í dag er Menningarnótt í Reykjavík eina ferðina enn og allt að verða vitlaust hérna fyrir utan gluggann hjá mér. Veðrið er, ótrúlegt en satt, bara sól og blíða en það getur nú breyst eins og við öllu vitum án fyrirvara. Annars er bara allt gott að frétta af öllum og ég get bara ekki beðið eftir að fara í sumarfrí. Svo er ég reyndar líka að bíða eftir nýjum myndum af prinsessunni ykkar svo að þið megið fara að taka ykkur á í þeirri deild:)
Þúsund kossar frá Íslandinu:)
kv. Peta