Leikskóli

Nú eru amma, Gunna og Kári því miður farin heim aftur en Anna Xing (og okkur) fannst þetta nú ekki nóg goða hugmynd hjá þeim. Hún spyr daglega um amma, gunu og káwa og ég er alltaf að segja henni að þau eru á Íslandi og að hún mun hitta þau um jólin.

Svo byrjaði hún í siðasta viku (nákvæmlega 23.ágúst) í leikskólanum en eins og stendur er ég með henni þar. Henni finnst mjög gaman í leikskólanum. Fyrsti dagurinn gekk vonum framar, meðal annars af því að Lili var þar líka og stelpurnar foru strax að róla saman og foru svo í sandkassann og að skóða hús sem stendur þar. Á fimmtudaginn var Lili ekki í leikskólanum og þá var Anna Xing aðeins meira hjá mér en samt ekki eins mikið og ég var hrædd um. Það er sem sagt smá von um að þetta mun heppnast hjá okkur en mér finnst það reyndar svolitið galli að ég frétti að það er ekki ein manneskja sem mun sjá um hana, vera „hennar“ tengipersona þar. En það eru 3 konum sem sjá um þessi 15 börn þarna, þær heita Eva, Rút og Gitti. Sjáum nú til hvernig þetta gengur en ef Anna Xing ræður ekki við þetta að hafa 3 manneskur í staðinn fyrir eina þá verðum við bara að finna aðra lausn. En eins og stendur nýtur hún þess að fara í leikskólann.

Og svo er það að frétta að í morgun þá varð Lalaa líka að bursta tennur (mjög mikilvægt) og var svo sett í fótabað…. Svo vorum við stelpurnar að dunda okkur fyrir hádegi á meðan pabbinn svaf en svo mátti ég leggja mig (enda eiginlega veik) og Anna Xing og Einar fóru svo eftir miðdegislúrinu í reiðhjólaferð saman. Anna Xing finnst ægilega gaman að sitja aftan á hjólinu og Einar segi að hún hefur verið að kjafta stanslaust – hún er greinilega alltaf að segja frá því sem hún sé, í þetta tilfelli til dæmis 3 asnar og fleira. Þegar hún kóm svo heim hjóp hún til mín og sagði mér svo líka frá – held ég. En á meðan hún er farin að tala meira og meira og lærir nokkur orð á dag þá eru svona frásagnir hennar enþá óskiljanlegar. Svo var hún í bestu skapi það sem eftir var dagsins og sofnaði svo undir eins núna rétt rúmlega átta – hún mun svo vaknar

One thought on “Leikskóli

  1. Sæl þið
    Gott að sjá einhverjar nýjar fréttir en við kíkjum á síðuna daglega til að vita hvað sé að frétta. Anna Bíbí kíkir líka á myndirnar af Önnu Xing og er alveg með á hreinu að hún á heima í Austurríki, það væri nú gaman að fá að sjá nýjar myndir á næstunni ;o)
    Annars höfum við það gott hér, Anna Bíbí er byrjuð á leikskóla eins og þið vitið og gengur bara mjög vel þar en verr hérna heima. Hún er greinilega ekki alveg að höndla þessa breytingu, veit ekki alveg hvernig hún á að haga sér. En þetta er vonandi allt að koma og vonandi verður hver dagurinn betri hér eftir. Meðan á aðlöguninni stóð var hún með einn tengilið og við erum mjög ánægð með hvernig er unnið á leikskólanum, góður tími tekinn í aðlögun eða bara eins og þarf, ekkert verið að reka á eftir eða flýta sér.
    Við skiljum að það sé fremur tómlegt eftir að gestirnir fóru en vorum svo kát að lesa að þið ætlið að koma um jólin ;o) ;o) ;oD Við hlökkum til, við hljótum að hitta ykkur er það ekki öruggt ???
    Við vorum með tölvumann hér þegar þú „kallaðir“ á mig í dag Susanne, heyrðum bara í Nonna inni í tölvuherbergi svo ég bað hann bara að svara þér því ég var að undirbúa matinn. Vonandi „heyri“ ég í þér fljótlega, kann reyndar ekki alveg á þetta en það er allt í lagi að reyna ;o)

    Jæja, nóttin að nálgast. Biðjum að heilsa ykkur í bili og sendum ykkur knús og kossa yfir netið, Sigurbjörg, Axel og Anna Bíbí

Schreibe einen Kommentar

Diese Website verwendet Akismet, um Spam zu reduzieren. Erfahre, wie deine Kommentardaten verarbeitet werden.