Ein í leikskólanum
Í dag var stori dagurinn: Anna Xing varð ein eftir í leikskólanum. Þetta gerðist þannig að ég for með henni þangað svona um níu leitið og eins og alltaf var hún greinilega ánægð að fá að fara þangað. Svo var sungið og leikið, allt mjög gaman. Svo fengu krakkanir smá nesti og á meðan forum við Margarita (mamma hennar Lili) í eldhúsið að drekka kaffi. Þar spurði Margarita hvort hún á að fara og svarið var að best væri ef VIÐ mundum fara. Þetta var nú ekki alveg planið hjá mér að skila litla stelpan mín ein eftir í dag en leikskólakennarinn vildi meina að það væri í lagi. Eftir smá paníkkast kvaddi ég Önnu Xing eins og alltaf, hún veifaði á eftir mér á meðan Eva leikskólakennarinn held á hana og svo var þetta bara í lagi. En því miður var Anna Xing slegin af tæplega þriggja ára stelpu eftir svona hálftíma og hún náði sér ekki alveg eftir þetta. Hún grét og gat ekki róað sig niður aftur og
Category: Almennt-General, Dagbók Önnu
Hæ þið
Gott að heyra frá ykkur, við tökum sko ÖRUGGLEGA frá tíma þegar þið komið í des. ;o)
Gaman að lesa hvernig gengur hjá dóttlunni á leikskólanum, dagarnir hér eru svona upp og ofan – byrja oftast með gráti á leikskólanum :o(
Frábært að sjá þessar myndir af Önnu Xing (hér fyrir neðan) og vita að hún stækkar og dafnar vel eins og aðrir.
Knús, knús yfir til ykkar, fólkið í Fannafoldinni
Halló kæra fjölskylda,
gaman að kíkja til ykkar eins og alltaf 🙂
Hlökkum hrikalega til að sjá ykkur um jólin! Þurfum við ekki bara að festa einhvern góðan dag fljótlega fyrir stóran „hitting“?!
Nú er kominn tími á nýjar myndir af fröken Önnu Xing! Áfram Einar!!!
Kær kveðja,
Kristjana, Palli, Uni Dagur, Signý Pála og Hanna Steina.