Baba og bless

„Baba“ er austurríska fyrir „bless og farðu bara“. Og nákvæmlega það segir Anna Xing núna á hverjum morgni þegar ég skila hana eftir á leikskólann. Ég er alltaf með henni í nokkrar mínutur og svo tilkynni ég henni að ég er að fara, hún fær sinn „bless-koss“ sem er MJÖG mikilvægur (fyrir mig ekki siður og hana) og svo fer ég. Oftast vinkar hún og í siðasta lagi þá er hún aftur farin að brósa, vinka mér, sendir kossar og svo fer hún að leika sér áfram með hinum krökkum. Þetta er ótrulegt hvað þetta kom hratt þegar hún var loksins búin að fadda að ég er ekki að yfirgefa henni, að það er engin valmöguleiki og að ég er alltaf að koma aftur. Eins og stendur er hún vanalega frá kl. 9 til svona 11.30 en þetta dugar henni alveg. Hún nýtur þess að vera þarna en þegar hún kemur heim er hún mjög þreytt. Oft er það þannig að hún vill eiginlega ekki gera mikið meira allan daginn, vill oft frekar vera heima, dunda sér og svona. En þetta er nú bara skiljanlegt, hún lærir svo mikið nýtt, sé svo mikið og þarf að vinna úr því í rolegum heitum.

En samt, svo eru dagar eins og í dag. Við mæðgurnar forum siðdegis til Oma og Opa (= amma og afi) og svo að þjálfa Sám. Hún er sem betur fer búin að læra að það er bannað að stela verðlaunin hans Sáms og að ég þarf að fá smá frið til að vinna með honum. En í staðinn er hún búin að sjá hestana sem eru svona um 300m í burtu. Hún labbaði þangað (alein) og svo stoð hún þarna – ég vona bara að hestar bitar ekki of fast. En svo allt í einu klifraði hún yfir girðinguna (sem betur fer var ekki rafmagn á því) og var komin inn á milli hestanna sem eru aðeins stærra og íslenskir hestar. Ég veit svo sem að þessir hestar eru vanir mönnum en mér var nú samt ekki saman og ég hlop bara til að ná í hana – sem henni fannst bara skemmtilegur leikur.

One thought on “Baba og bless

  1. Gaman að sjá hvað gengur vel hjá ykkur þarna í Austurríkisdeildinni 🙂 Susanne þú verður svo að skrifa oftar í bloggið það er svo gaman að fylgjast með ykkur *knús* kær kveðja Bríet

Schreibe einen Kommentar

Diese Website verwendet Akismet, um Spam zu reduzieren. Erfahre, wie deine Kommentardaten verarbeitet werden.