Ferðaplanið

Jæja, ferðaplanið er að þróast. Eins og stendur litur út fyrir að við fljúgum út á mánudagsmorgunn 2. maí til Köben og verðum þar í eina nótt. Þriðjudagskvöldið 3. maí fljúgum við til Beijing og lendum þar á miðvikudaginn 4. maí. Næstu dagar verða notaðir í kynnisferðir þar sem við förum að skoða múrinn fræga eða forboðnu borgina. Sunnudagskvöldið (8. maí) ættum við að fljúga til Suður Kína, til Nanning nákvæmlega. Planið er að við fáum börnin okkar afhent mánudaginn 9. maí á ættleiðingarskrifstofu í Nanning. Við verðum svo að vera nokkrir daga í Nanning til að ganga frá ættleiðingunni og vegabréfum fyrir börnin en förum væntanlega í stuttar og léttar skoðunarferðir þaðan. Um næsta helgi verður flogið aftur til Beijing þar sem við þurfum að fá hjá danska sendiráðinu vegabréfsáritun fyrir börnin inn í Schengen svæðið. Miðvikudaginn 18. maí eigum við flug pantað heim í gegnum Köben.
En eins og stendur er þetta bara planið, allt fer eftir hve fljót CCAA (kínverska ættleiðingaskrifstofu) verður að gefa út ferðaleyfin fyrir börnin okkur en þetta skýrist bara í lok apríl, þannig að þetta verður spennandi.

Schreibe einen Kommentar

Diese Website verwendet Akismet, um Spam zu reduzieren. Erfahre, wie deine Kommentardaten verarbeitet werden.