4 thoughts on “Myndir / Photos

  1. Komið þið margblessuð og sæl litla fjölskylda. Ég sé að það er allt of langt síðan ég kíkti hér inn síðast. Það er bara allt að gerast hjá litlu prinsessunni ykkar. Æðislegt að sjá nýjar myndir, hún er orðin svo stór og falleg. Mikið verður nú gott að sjá ykkur ef þið komið um jólin og fá að hafa ykkur hjá okkur í smá tíma. Ég veit að amma er yfirspennt að fá litlu Önnu sína í heimsókn og kannski pínkulítið líka yfir foreldrunum:) Annars langar mig líka að óska síunga afmælisbarninu til hamingju með stórafmælið um daginn. Vonandi gerðir þú eitthvað skemmtilegt í tilfefni dagsins. Héðan er annars allt fínt að frétta, búið að vera frekar vetrarlegt hjá okkur undanfarið en samt fallegasta vetrarveður svo að við getum ekki kvartað. Amma er á milljón núna í jólaföndrinu og er orðin frekar grá og guggin af stanslausum vökunóttum og stressi en það er nú allt eins og það hefur verið og þó að henni þyki það alveg ótrúlegt í augnablikinu þá á hún örugglega eftir að klára þessa vertíð með glans eins og allar hinar:) Hún er alltaf jafn dugleg kellan. Reyndar er hún í fríi í dag og á morgun og svo er mesta stressið búið eftir næstu helgi og þá tekur hið hefðbundna jólastress við sem ég held að sé mun viðráðanlegra:)

    Annars ætla ég ekki að hafa þetta lengra í bili, lofa að láta ekki líða svona langt á milli þar til ég kíki á ykkur næst og hlakka til að sjá ykkur um jólin.

    kv. Peta frænka:)

  2. Sæl kæra fjölskylda

    Yndislegt að sjá loksins einhverjar myndir frá ykkur, maður fær bara „Heiðu í fjöllunum“ fiðringinn ;o)
    Anna Xing er orðin ótrúlega stór eftir myndunum að dæma og alltaf jafnmikið krútt, jafnvel bara meira krútt ef það er hægt ;o)
    Við hlökkum svo óskaplega mikið til að hitta ykkur eftir nokkrar vikur, finnst vanta þó nokkuð í hittingana okkar :o(

    Bestu kveðjur í Austurríkið, Sigurbjörg, Axel og Anna Bíbí

  3. Gaman að sjá nýjar myndir af þér ungfrú yndisfríð 🙂
    Hlökkum mikið til að sjá þig og foreldra þína heima á Íslandi í desember.
    Gangi ykkur vel að undirbúa jólin í hlýindunum í Austurríki!
    Kærar kveðjur,
    Kristjana, Palli, Uni Dagur, Signý Pála og Hanna Steina.

Schreibe einen Kommentar

Diese Website verwendet Akismet, um Spam zu reduzieren. Erfahre, wie deine Kommentardaten verarbeitet werden.