EVA
Í dag gerðist þetta svo (loksins):
Við fengum upplýsingar sem við höfum svo mikið beðið eftir.
Okkur biður stulkubarn á barnaheimili í Kambodiu, í Phnom Penh. Áætlaður fæðingardagur hennar er 22.01.07 en hún var yfirgefin samdagurs og vor þá strax á barnaheimilið þar sem hún dvelur enþá.
Við fengum mjög litlar upplýsingar um hana, bara gögn sem eiga að sanna það að hún var yfirgefin og hvenær hún kom á barnaheimilið. Og svo tveggja siða læknaskyrslu (frá því 23.07) og eina mynd. En engar frekarar upplýsingar um hvernig hún er, hvað henni finnst gaman, hvernig þróskastigið er eða annað.
En samkv. læknaskyrslunni, þá var hún 23.07 (6 mánaða) 65cm
Category: Almennt-General, Dagbók Önnu
Æði, Æði alveg æðislegar fréttir.. Innilega til hamingju með Evu litlu hlakka til að fá að sjá myndirnar. Alveg æðislegt. Guð hvað ég samgleðst ykkur innilega.
Anna Xing verður stóra systir.
Koss og knús
Vala Ólöf