Ferðaleyfið komið
Loksins: við vorum að fá email frá Íslenskri Ættleiðingu sem segir, að ferðaleyfin fyrir börnin okkar eru komin, allavega á faxi. Það dugir vist, við fáum frumritið afhent af farastjóranum okkar við komuna til Beijing. Þá á ekkert að vera því til fyrirstöðu að ferðaáætlun okkar til Kína standist, sem sagt komum til Beijing 4. maí. Samkvæmt planinu fáum við (sem sagt hópurinn) dætur okkar „afhentar“ 9. maí í Nanning. Það er gert ráð fyrir að við komum heim til Íslands 18. maí ef allt gengur vel úti.
Category: Almennt-General, Ferðin til Kína