4 vikur…
Jæja, það er að styttast í ferðina okkar. Við vorum að flugmiðanna okkar í gær, við erum bókað 7. sept til Bangkok og svo áfram til Phnom Penh. Og svo verður það spennandi ….
Það er akkurrat í dag fjölskylda að fara af stað til Kambodiu sem á að fá barn frá sama barnaheimilið og við, það heitir vist Holybaby Orphanage. Við létum þau fá smá myndaalbum fyrir Evu með 6 myndum af okkur og ég setti litlar miðar með sem segja á khmer „mama“ og „papa“ og svo á frönsku (sem er talað þar): „Anna Xing systur“. Kanski hefur eitthver tíma að syna henni myndirnar og ef ekki þá getur hún notað þetta allavega sem leikfang.
Og svo er vonin að þetta fólk getur jafnvel tekið mynd og sent okkur…..
Var líka að tala við enn önnur fjölskylda sem var að koma heim með barn frá Holybaby Orphanage. Þetta er barnaheimili sem frönsk barnafatafyrirtæki styður og er þetta vist miklu betur sett og önnur barnaheimili í Kambodiu sem er rekið af ríkinu eða kambodisk stofn. Þetta fólk var allavega mjög sátt. Það voru þarna líka akkúrrat nokkrir læknanemar frá Frakklandi sem voru að hugsa um börnin, leika með þeim og hjálpa fóstrunum. Það virðist ekki að vanta mat þar og væntanlega ekki föt heldur.
En það er þannig að við munum sækja Evu þangað og það verður frábært að fá að sjá barnaheimilið þar sem Eva ólst upp fyrstu mánuðin lifsins sitt. Mér finnst enn svo sárt að hafa ekki fengið að fara til Yizhou þegar við vorum að sækja Önnu Xing.
Og svo er það spennandi að við erum með plagg í höndinni þar sem er gefið upp fæðingarstað Evu en það er vist gata í Phnom Penh. Nú þurfum við bara að finna út hvað er þarna, er kanski jafnvel fæðingardeild þar? Mér finnst þetta rosalega furðulegt að það er vitað fæðingarstaður en ekki hver foreldrar hennar eru. Við munum allavega reyna að botna í þessu og finna út það sem er hægt. Svo erum við líka með nafn á manni (village chief) sem tók við Evu og lét hana svo á barnaheimilið. Ég er að vona að það verður hægt að heimsækja þennan mann og taka jafnvel mynd af honum, hann leik nú mikilvægt hlutverk í lifið hennar Evu finnst mér. Þar sem þetta gerðist allt í Phnom Penh eða á „höfuðborgarsvæðinu“ þá vonum við að þetta verður hægt. Jæja, sjáum bara til, það er erfitt að reyna að ímynda sér ástandið þarna og hvað er hægt og hvað ekki. Og svo er spurningurinn hvað verður hægt með 2 börn með sér í fjörunni.
Category: Almennt-General, Dagbók Önnu