3 vikur
Í dag eftir 3 vikur verðum við komin til Phnom Penh og jafnvel búin að fá stelpuna, í seinasta lagi munum við fá hana á mánudaginn, sem sagt á morgun eftir 3 vikur!
Spennan er að aukast og undirbúningin á „full swing“.
Anna Xing björgunarhundaþjálfarinn
Eftir langan tíma tók ég Anna Xing aftur með mér á æfingu. Það hefur hingað til aldrei gengið almannlega upp, hún vildi bara að ég skuli bera hana og það gengur ekki upp ef maður á að leiðbeina öðrum eða þjálfa sinn eiginn hund. En í þetta skipti var bara fátt fólk sem mætti og allt fólk sem Anna Xing þekkir, sérstaklega stelpan Silke (10) er vinkona hennar.
Og viti menn, þetta gekk bara vel upp, á meðan ég var að leiðbeina var Anna Xing að leika sér við Petru, Silkemömmu. Svo fylgði hún grant með okkur Sám á meðan við vorum að leita en hún fekk að fara á háhest hjá Angi. En svo var ekki hægt að stoppa hana meira, hún vildi endilega fá að leika við Sám lika – hún hefur fengið að fara í boltaleik við hann undir eftirlit frá mér en reglan er sú að Sámur verður að sitja eða liggja á meðan hún er með boltann í höndunum og er að „kasta“. Og það er svo skondið að sjá hana hvernig hún reyni að stjórna hundinum, skipa honum „ligg, ligg, ligg“ alveg bak og fyrir og segir svo „gjörðu svo vel“ þegar hann má fara og ná í boltann. Hundurinn er nú ekki 100% að hlyða henni en samt, þetta er alveg að koma.
Og svona var hún að leika þarna í skoginum líka við Sám, Silke og broður hennar, hann Eric, voru líka á fullu.
En svo gat ég ekki alveg stoppað mig af og varð að prufa að setja Anna Xing út sem figúrant fyrir Sám – að sjálfsögðu upp á smá (en ekki háan) stall og saman með Silke. Og sjáið til, stelpan kom mömmu sinni enn einu sinni á óvart: hún var í alvöru kurr á staðnum með Silke á meðan ég for og náði í Sám. En þetta var alveg brilliant sjón: Silke var með leikfangið undir bolnum og Anna Xing að sjálfsögðu líka með sitt undir bolnum. Svo sá ég bara hvernig hún held ræðu yfir Silke, greinilega að útskyra fyrir henni hvað maður ætti að gera svo við leikfangið og fleira. Allavega mjög mikilvæg ung dama.
Svo sendi ég Sám til þeirra og hann gelti á fullu á stelpurnar og fékk að leika sér svo.
En þegar ég reyndi svo að láta hann finna Anna Xing eina þá for hann jú til hennar en lagðist svo hjá henni og horfði á mig. Þannig að: ég verð að vinna í því að kenna honum að finna 3ja ára „systur“ sinn og gelta á hana.
En aðalmarkmiðið æfingarinnar var náð: að byrja á því að þjálfa Anna Xing upp í að vera figurant fyrir björgunarhunda og að verða seina
Category: Almennt-General, Dagbók Önnu
Sælar elskurnar
Yndislegt að lesa pistilinn frá ykkur, alveg nauðsynlegt til að vita af ykkur. Erum mikið búin að hugsa til ykkar síðustu daga og nú bara bíðum við með ykkur og teljum niður.
Já og sannarlega eigið þið duglega stelpu. Hún Anna Xing er sko algjör gullmoli og yndisleg og dugleg. Anna Bíbí er alltaf að kíkja á myndina af þeim vinkonunum sem er á hillunni í herberginu hennar og er alveg sæl og ánægð þegar hún fær líka að skoða myndirnar í tölvunni. Hún biður sérstaklega um að fá að sjá Húsdýragarðsmyndirnar enda áttu þær vinkonurnar góða dagstund þar saman.
Sendum fullt af knúsi yfir til ykkar og vonum að allt gangi vel við að undirbúa og pakka enda ekki svo langt síðan síðast ;o)
Bless í bili, Sigurbjörg, Axel og Anna Bíbí
Innilega til hamingju kæru vinir.
Fylgjumst spennt með og verður gaman að fá að sjá myndir 😉
Já og ekki seinna vænna að byrja að þjálfa barnið í að verða björgunarhundaþjálfari 🙂
KVeðja Ragga, maðurinn, bumban og dýrin í Krókabyggð