Spennan er að aukast…

…ég verð að viðikenna að ég er farin að sofa frekar laust, ef yfir höfuð 🙁
Það er svo margt sem maður verður að hugsa út í, má ekki gleyma, á eftir að skipuleggja.
Við Einar erum bæði að hlakka mikið til í að fara af stað og sækja stelpunni en við erum líka vel stressuð yfir 10 tímar flug með Önnu Xing (að notti til) og ferðalagið yfir höfuð. Við vonum bara að þetta fer ekki allt of illa í hana og að hún verði ekki veik. En aftur erum við að lenda í því að ferðast á monsum-tímann. Það verður sem sagt svona 30-35stíga híti og 90% raki úti en loftkæling inni sem er algjörlega ömulegt blanda og varð til þess að Anna Xing kom heim frá Kína með lúngnabolgu. Við verðum bara að passa okkur enn betur í þetta skipti, svo mikið er vist.

Staðan er þannig að við erum bara 2 fjölskyldur sem eru að sækja annað barnið sitt til Phnom Penh en hin fjölskyldan tekur stelpan sin ekki með í ferðalagið. Þau eru að sækja 3ja mánaða gamlan strák. Þetta virðist vera ágætis fólk en við þekkjum þau ekkert hingað til, höfum bara talað saman í gegnum símann.

Ferðaplanið er þannig:
Við förum af stað frá Gallspach á föstudaginn nk (sem sagt eftir innan við 3 sólarhringar!!!!!!! PANIK!!!!) eftir hádegismatnum, þannig að Anna Xing getur sofið í bílnum (vonum bara að hún sofi). Förum til Vínarborgar og vonandi verður veðrið nog gott til að við getum farið í stora dyragarðinn í Schönbrunn, AX elskar það að skoða dyrin. Svo viljum við fá okkur goðan kvöldmat, hitta Sabina vinkona og mæta svo í flugstöð upp úr níu. En velin á að fara í loft rétt fyrir hálf tólf.
Við þurfum svo skipta um vel í Bangkok en þaðan er nú bara um klukkutíma flug til Phnom Penh þar sem hótelið sé um að sækja okkur frá flugstöðinni. En þetta er þannig að það er ekki beinlinis leiðsögumaður sem sé um allt heldur bara maður sem mun leiða okkur í gegnum ættleiðingin en ekki meira.
Við lendum sem sagt vonandi á laugardagskvöld í Phnom Penh og höfum svo sunnudagurinn til að jafna okkur eftir flugið –

5 thoughts on “Spennan er að aukast…

  1. Elsku vinir
    Er mikið búin að hugsa til ykkar síðustu daga og alltaf að líta við eftir fréttum. Nú er heldur betur farið að styttast í ferðina sem mér sýnist að verði tíu dagar hjá ykkur ekki satt ??? Anna Xing á sko eftir að pluma sig vel í ferðinni, náttúrulega algjörlega flugvön og þó hitinn og rakinn sé mikill, þá er þetta náttúrulega eitthvað sem hún þekkti þó hún hafi ekki verið í því umhverfi síðan hún kom heim til ykkar.
    Vá hvað verður gaman að fá að fylgjast með, þið verðið að reyna að setja inn fréttir af gangi mála og myndir ef hægt er. Ótrúlegt að það sé komið að þessu ;o)
    Annars er allt fínt að frétta héðan. Anna Bíbí var í dag að byrja á 8 vikna sundnámskeiði ásamt 11 öðrum krökkum, þ.e. 10 frá Kína og einum frá Indlandi. Sannarlega gaman í dag, mikið fjör og mikið gaman. Hún er í einhverjum vaxtakipp, búin að ná 11,5 kg – loksins og orðin held ég 86-7 cm. Þvílík stærð á píslinni okkar. Hún er ekkert smá sæl að geta stundum kíkt á myndirnar af vinkonu sinni í Austurríki sem svo sannarlega er ekki gleymd, finnst reyndar svolítið skrítið að hún sé að eignast systur sem við höfum líka sýnt henni mynd af.
    Sendum ykkur fullt af knúsi og kossum og kveðjur og satt að segja söknum við ykkar hér heima :o(
    Gangi ykkur vel í ferðinni og við fylgjumst grannt með, xxx Sigurbjörg, Axel og Anna Bíbí ofurkrútt

  2. Elsku vinir,
    okkur langar til að óska ykkur góðrar ferðar í ævintýraferðinni sem framundan er og vonum að allt gangi að óskum. Hlökkum til að fylgjast með og ekki síst að sjá myndir af fjögurra manna fjölskyldu 🙂
    Hugsum hlýtt til ykkar.
    Kær kveðja,
    Kristjana, Palli, Uni Dagur, Signý Pála og Hanna Steina.

  3. Elsku fjölskylda

    Óska ykkur góðs gengis í stóru ferðina ykkar. Anna Xing mun nú verða frábær stóra systir.
    Já, þau vaxa og þroskast svo fljótt.

    Hlakka til að sjá myndir af Evu og góða ferð og gangi ykkur vel.

    Koss og knús til ykkar allra
    Vala Ólöf

Schreibe einen Kommentar

Diese Website verwendet Akismet, um Spam zu reduzieren. Erfahre, wie deine Kommentardaten verarbeitet werden.