Ferðalagið til Kambodiu
Loksins, við erum komin til Phnom Penh.
Ferðalagið gekk bara nokkuð vel, miðað við að Anna Xing gat bara sofið í 4 klt í velinni, sem sagt bara 4 klt þá nótt. Við vorum öll frekar þreytt á meðað beðið var í Bangkok eftir flugið áfram. En samt gat Anna Xing ekki sofið strax í flugvelinni, var bara of ör, of hyper til þess. Svo sofnaði greyið bara rétt áður og við lentum í Phnom Penh og svaf þangað til að við vorum komin inn á hótelið. Þá vaknaði hún og helt vöku fyrir þreyttum foreldrum sinum í tæplega 5 tímar til viðbotar. Þannig að: við vorum ekki að mæti í morgunmat í morgun og rétt náðum í seinan hádegismat.
Svo ákvaðum við að fara í smá bæjaferð með svokallað túktúk sem er motorhjól með farþegarsætum afturí. Þetta var nú meira ævintyrið, umferðin ótruleg. Helst motorhjólar, bilar inn á milli. Fólk kemur úr öllum áttun, jafnvel á rangri akrein. En samt gegnur þetta hægt og rolega, enginn stress eða lætin. Öryggið er ekki alveg í hámarki svo, sáum motorhjólar með heilli fjölskyldu á. Smábarnið fremst, svo pabbinn sem er að styra faratækið, svo næsta barnið helst standandi (svona 3-4 ára) og svo mamman. Og hver þarf svo sem að nóta hjálm??
Á morgun eigum við svo að fá að fara á barnaheimilið og sækja litla stulku. Okkur er sagt að vera tilbúin á hótelinu kl. 16:00 og við verðum skó tilbúin!
Category: Almennt-General, Dagbók Önnu
Ú la la … spennan að aukast, kíkt eftir fréttum daglega. Gott að vita að þið eruð komin og vonandi náið þið góðum svefni í nótt. Vááá … og svo litli unginn í fangið á morgun :oD
Sendum hlýjar hugsanir, knús og kossa, Sigurbjörg, Axel og Anna Bíbí
Hér úr Víkinni er líka fylgst með af spenningi. Vorum að velta fyrir okkur hvort þið hefðuð bara ekki verið öruggari á fjórhjóli 🙂
Gangi ykkur allt í haginn,
góðar kveðjur úr Mýrdalnum
Grétar, Íva og co
Kveðja frá okkur, gangi ykkur vel í dag 🙂
Ragga og kó