Takk kærlega fyrir að snara einhverju á íslensku Susanne mín, yndislegt að geta lesið fréttir af ykkur.
Að þú skulir hafa fundið fyrrum „heimili“ Evu Dóru er svo ótrúlegt og svo mikils virði, get eiginlega ekki ímyndað mér tilfinningarnar sem hljóta að hafa borist, svo óraunverulegt eitthvað en svo yndislegt. Þú hefur örugglega tekið fullt af myndum í minningasafnið hennar.
Elsku litla kerlingin að vera svona lasin og hafa kannski ekki fengið rétta meðhöndlun, vonandi frískast hún nú fljótt og verður hress og kát og spræk eins og hún á að sér að vera.
Sendum ykkur fullt af knúsi, þið eigið það svo sannarlega skilið. Njótið þess nú að hnoðast, knúsast og kynnast í ró og næði og reynið að koma góðri rútínu á fjölskyldulífið eftir ævintýri síðust vikna.
Knús og kossar, Sigurbjörg, Axel og Anna Bíbí
Elsku vinir – velkomin heim.
Maður er nú eiginlega orðlaus eftir þessa lesningu en mikið er nú gott að vita af henni Evu Dóru í góðum höndum.
Gangi ykkur sem allra best.
Ykkar vinir,
Freyja, Þórir, Lind og Berta Rögn.
Kæra fjölskylda
Innilegar hamingjuóskir með hana fallegu Evu Dóru, hún er alveg yndisleg. Og velkomin heim með hana. Gott að hún sé að frískast og sé komin í réttar hendur. Við hlökkum til að sjá ykkur stórfjölskylduna í næstu Íslandsreisu !!
Kær kveðja
Kristín, Gústi og Matthildur
Hæ hæ.
Gott að Önnu Dóru líður betur og vonandi gengur allt vel.
Þetta hefur verið ævintýralegt ferðalag 🙂
Knús frá okkur í Krókabyggð.
Ragga, Maurice, bumba og dýr.
Haha meina Evu Dóru, var með nafnið Anna Bíbí fast í hausnum eftir að lesið kommentin hér að ofan 😉
Ragga
Elsku vinir,
velkomin heim!
Þið eruð aldeilis búin að upplifa ævintýri í lagi! :o)
Gott að Eva Dóra er að hressast.
Gangi ykkur vel að stilla saman strengina heima.
Kær kveðja,
Kristjana, Palli, Uni Dagur, Signý Pála og Hanna Steina.
mikið er gott að lilta daman skuli vera að hressast. Ég kem þeim fréttum til ömmunar sem er eitthvað voða áhyggjufull hérna megin:) Til hamingju líka með að vera komin heim fallega fjölskylda.
Elsku vinir

kv. Peta frænka og litli bumbubúinn:)