Business as usual?
Jæja, þá erum við öll komin heim og lifið er að fara að ganga sitt vanagang.
Anna Xing er aftur að mæta á leikskólann og finnst það nú bara mjög fínt. Alltaf gaman hjá henni þar.
Sidegis erum við að eiga mikinn tíma saman, reynum að leika eins mikið við Önnu Xing og hægt er, hún fær heljamikla athygli. Þetta virðist ganga vel. Jú, stundum er hún greinlega smá afbrigðusöm og ekki allt of mjúkhent við litla systur. En um leið og Eva Dóra grætur, þá fer Anna Xing til hennar, tekur útan um hana, lætur hana fá dót til að leika sér og reynir að hugga litla systur. Hún er að hjálpa til við að skipta á henni og heldur stundum pelan hennar. Hún stendur sig rosalega vel, það verður nú bara segja það. Sagt að segja kemur hún mér á óvart.
Eva Dóra hefur það líka gott, fyrir útan smá niðurgang enþá. Við fáum niðurstöður úr rannsóknum á þriðjudaginn nk. En þetta virðist ekkert að há hana, hún er hress og kát. Sefur reyndar mikið. Siðasta nótt svaf hún frá 20:30 til sjöleytið (en fékk pela um miðnæti og svo aftur um fimmleyti). Svo aftur frá
Category: Almennt-General, Dagbók Önnu
Frábært að heyra að allt er komið í eðlilegt horf.
Susanne, ég sé þig í anda í íþróttaálfabúningnum hoppandi upp og niður, út og suður.. *tjúmm, tjúss*
Æðislegar myndir af systrunum og ykkur.
Kossar og knús
Vala
Mikið að gera á stóru heimili 😉
Hafið það sem allra best.
Ragga og kó