Allt að verða tilbúið

Jæja, nú erum við búin að fá flugmiðanna okkar og vegabréfáritanir. Þannig séð erum við tilbúin í ferðalagið stóra og stemmingin akkúrat þannig. Hópurinn hittist í kvöld heima hjá Kristjönu og Palla og var mikið spekulierað og rædd og pælt í ferðalaginu. Allir orðin frekar spennt.
Fyrsta parið fer af stað á sunnudaginn til Köben en 7 pör fara á mánudagurinn. Svo hittum við síðasta parið á þriðjudaginn bara í flugstöð í Köben á leiðinni til Beijing þar sem síðasti meðlimur hópsins (Hildegunde, moðir hennar Susanne) kemur inn í hópinn en hún kemur með beina flugið frá Vínaborg.

Schreibe einen Kommentar

Diese Website verwendet Akismet, um Spam zu reduzieren. Erfahre, wie deine Kommentardaten verarbeitet werden.