LOKSINS!!!!
Ég segi nú bara „LOKSINS“ er bloggið komið upp aftur. Það tók því miður ansi langan tíma fyrir Einar að laga það sem að var – en alltaf bara eitthvað annað að gerast hjá okkur.
Stelpurnar hafa það mjög gott.
Anna Xing er orðin svo STOR, alveg ótrulegt. Í dag var hún næstum því allan daginn með sitt eigið programm, án okkar. Hún for með Lili í leikskólann (mamma hennar Lili keyrði stelpurnar), var þar svo fram yfir hádegissvefnin (veit reyndar ekki hvort hún svaf…) og var svo sótt af Erich „Lilipabbi“ og for með þeim til Wels í tónlistaskólann, þar sem hún er núna í „tónlist fyrir börn“. Svo leikvöllurinn og ís eftir það og við sóttum hana svo um 6 leiti heim til Lili – og tæplega að hún vildi koma með okkur heim!
Hún er orðin svo dugleg að hjóla (án hjálpardekkja), nema sl. laugardag, þegar við vorum á leið í sundi, þá horfði hún aftur fyrir sig og missti jafnvægi og datt ofan í brenniætlar – svo lá hún þar og öskraði og því miður var ég aðeins fyrir aftan henni. Þegar ég náði hana loksins úr brenniætlum, þá var hún komin með útbrót í andlitinu, á hálsinu, höndinni og fótinn. Greyið stelpan. Sem betur fer var vatnið í sundinu orðin aðeins svalari og það hjálpaði mikið.
Í gær dó hann „bibaputzermann“ (= 20sm stór botnfiskur) og ég greip tækifærið til að útskyra þetta fyrir hana og hún byrjaði sjálf á því að hann væri mjög veikur og sofandi og ég reyndi að koma þetta inn hjá henni að hann mundi ekki vakna aftur. Allavega var hann bibaputzermann jarðaður í garðinum okkar og Anna Xing er oft að tala um hann endar var hann í miklu uppáhaldið hjá henni.
Eva Dóra er að vaxa og þróskast alveg á fullu. Hún skilur svo vel hvað maður segir við henni og lætur mann alveg nákvæmlega vita hvort hún er sammála eða (oftast) ekki. Þetta er svo miklu upplifjun fyrir okkar þar sem Anna Xing byrjaði mjög seint á því. Þetta er svo brilliant að geta „talað“ við ED og fá svar – reyndar er hún ekki að tala enþá, hún er að safna orðum. En hún hristir höfuð eða bendir eða öskrar og svo kann hún það mjög vel að segja hátt og skyrt „NEI“! – Enda heyrir hún þetta orð svona 1000 skipti á dag þar sem hún er HANDÓÐ og meira en það. Hún er allstaðar og er að kanna allt = er að eyðileggja ansi mikið. Hún varð 2 gemsum okkar til bana og fleiri tæki „veiktust“ alvarlega eftir kynni með henni. Hún klifrar upp allstaðar. En því miður er hún ekki eins örugg og „save“ í heyfingum og AX var og er oft að hlaupa á eitthvað eða dettur. Hún er eitthvað meigin rosalega „clumsy“ og oft líka bara óheppin í hreyfingum. En það stoppar hana ekki, hún grætur og heldur svo áfram, reynir aftur.
Og svo má bæta því við að daman var skyrð í júli, það var mjög fín athöfn, held ég allavega. Ég gat ekki alveg fylgst með þar sem Eva Dóra og Anna Xing voru í því að „endurskipuleggja“ kirkjunni, voru að hlaupa um og vildu ALLSEKKI ekki sitja kyrrar. Svo kúkaði Eva og ég for út að skipta á henni og við hæfum næstum því misst á skyrnina sjálfri (það var önnur hjón sem var líka að skyra barnið sitt samtímis). Já, þegar 2 fjörugar stelpur eru yfirfjörugar samtímis þá eigum við Einar varla nein chance á moti þeim. 🙁
Svo er það að frétta að það er svolitið mikið að breytast á heimilinu núna þar sem ég er farin að kenna aftur, reyndar bara tæplega hálft starf en það er alveg nog til að byrja með. Við fengum okkur ráðskona til að koma heim til okkar og passa Evu, taka til og elda. Það gengur vel eins og stendur og er Eva að venjast því að mamman fer að heima en kemur aftur. Svo er Einar hvort sem er heima en hann hefur skrifstofuhurðinni lokuð til að fá vinnufrið. Samt gott að vita að Tereza er ekki ein heima með stelpunni. Okkur fannst betur að fá konu heim heldur senda Evu til dagmömmu – hún er þá allavega í sinu umhverfi.
Jæja, svo mikið til að byrja með, myndirnar segja svo sina sögu og heðan í frá verður aftur reglulega bloggað.
Category: Almennt-General