Á morgun leggjum við í hann
Jæja, á morgun byrja fyrir flest okkar stóra ferðalagið. Þórir og Freyja eru reyndar nú þegar í Köben en Annette og Sigurður koma ekki fyrir og á þriðjudaginn. En við hin 7 pörin erum á leiðinni til Köben á morgun.
Undirbúningar gengur vel, allir eru á fullu að pakka og reyna að gleyma engu. Að sjálfsögðu er aðalmálið að hafa pappíranna í lagi en svo er líka mikið pælt í hvað á að taka með fyrir stelpurnar, hvaða föt og hvaða leikföng og dót…en það sem gleymist verður bara keypt í Köben eða Kína.
Spennan er mikil, tilhlökkunin enn meira af því að það eru bara 8 dagar þangað til að við fáum loksins dætur okkar í hendurnar!
Category: Almennt-General, Ferðin til Kína
Góða ferð – hlakka til að fylgjast með ferðasögunni og sjá ykkur aftur
Bkv
svana