Leikið

Ég reyndi í dag að hafa sidegis alveg fyrir börnin, ekkert bras, ekkert annað gert nema leikið við stelpurnar. Þetta gekk nú nokkuð vel þrátt fyrir því að þær vildi eins og vanalega annaðhvort fara í sitt hvort átt eða vilja akkúrat það sem hín er ekki til í að deila….
En við vorum að teikna mikið og svo var líka föndrað.
Þegar Einar var búin í vinnunni fékk ég að fara í smá gönguferð með Sám í grenjandi rigningu sem var ansi hressandi.
Eftir að ég kom heim lentum við stelpurnar í hjónarúminu og vorum að leika okkur þar í rúma klukkutíma. Það var flogið og hoppað og kitlað og gert kornvis og …. og allt í einu var komið feluleik undir sængunni. Þetta breytist svo smám saman þannig að það var rísaeðla að skriða úr eggi og ég var alltaf að finna hvað kæmi úr egginu. „Hér kemur fotur og annar fotur og hné og rass og hönd og önnur hönd og haus og…BARN, en yndislegt!“ Eva Dóra fannst þetta gaman en Anna Xing fannst þetta ÆÐISLEGT. Hún vildi gera þetta aftur og aftur og aftur og smám saman var það ekki rísaeðla lengur sem skreið úr eggið heldur barn. Þá ákvað ég að börn eru ekki að skriða úr eggjum heldur úr mömmur og var leikurinn þá þannig, að mamman var að ganga með tvíbúrar og þær skriðu út – hér kemur fótur og annar fótur….
Eftir smástund voru svo aftur rísaeðlur að koma úr mömmu…..Allavega fæddist þennan kvöld svona um 30 börn/risaeðlur og hætti þetta bara, af því að mamman varð orðin verulega svöng (það er frékar krefjandi að fæða börn og rísaeðlur í svo storum stíl get ég sagt ykkur).
Nú eru tvær þreyttar stelpur sofandi.

Schreibe einen Kommentar

Diese Website verwendet Akismet, um Spam zu reduzieren. Erfahre, wie deine Kommentardaten verarbeitet werden.