Allt um menn og sjóræningjarnir

Lífið okkar snyst mikið um sjóræningjar þessa daga þar sem Anna Xing elskar að horfa á myndin „Lína og sjóræningjar“. Svo setur hún okkur í hlutverkaleik og er hún þá skípstjórinn eða sjóræningjinn og við hitt og þetta.
Svo í dag vildi hún vera sjóræningjinn en pabbinn átta að vera „maður“. Ég benti hana Önnu Xing svo á það að sjóræningjar væri nú líka menn en Anna Xing harðneitaði því. Ég spurði hana, af hverju sjóræningjar væru ekki menn. Svarið kom um leið: „af því að menn búa á jörðinni en sjóræningjar á eyjum!“
Ég viðikenn að ég helt varla andlitið og Einar varla heldur. Og svo kommentið frá Einari um að nú skilur hann þetta með ymislegt hjá Íslendingum….

Og svo var draumadagur hjá stelpunum. Þær fengu í fyrsta skipti að horfa á sjónvarpið MEÐ popp eftir morgunmatnum! Vonum bara, að þetta verður ekki vani.
Siðegis var svo farið í kaffiboð til Lili og mömmu hennar og voru eldri stelpurnar mikið að leika sér og pusla. En svo allt í einu gerðist eitthvað sem við vitum ekki alveg hvað var og út úr því kom, að Anna Xing vildi ekki leyfa Lili lengur að láta sér þykja vænt um Evu Dóru. (okay, þetta er svo sem þekt mál að enginn má elska Evu Dóru eins og hún Anna Xing….en samt, hún hefur nú oftast gert undantekning fyrir Lili sin). En Lili tekur svona ekki alveg án að hemta sin og vildi hún þar með ekki vera vinkonu hennar Önnu Xing lengur. Þetta særði nú hins vega Önnu Xing mikið. Ég talaði við hana og útskyrði hlutirnar og for hún þá beitn í Lili og bað hana um að vera vinkonur aftur. En Lili vildi ekki sjá Önnu Xing. Þetta endaði með tveimum særðum stelpum og okkur að fara bara heim. En áður talaði ég (og mömmu hennar) við Lili að hún mætti láta sér þykja vænt um Evu Dóru ef hún vildi það. Og svo var mikið talað við Önnu Xing um kvöldið að Lili mætti þykja vænt um Evu Dóru, það mætti hver maður ákveða um hvert maður lætur sér þykja vænt um. Erfitt mál með þessum tveimum stelpum stundum. Þær særa hvor aðra bara til að vera bestu vinkonur strax aftur. En þegar ég sá Önnu Xing labba aftur og aftur til Lili og hálf grátbiðja hana um að vera vinkonur aftur, þá sneri mömmuhjartað sér hring eftir hring, ég var sjáf grátur nær. Anna Xing er bara hjartabesta stelpan sem til er.

Schreibe einen Kommentar

Diese Website verwendet Akismet, um Spam zu reduzieren. Erfahre, wie deine Kommentardaten verarbeitet werden.