Anna Xing og dádyrið

Í dag gerðist svolitið mjög óvenjulegt: Anna Xing varð fyrir árekstur við dádyr í skóginum.
Leikskólahópinn for, eins og oft áður, í skóginn að leika sér. Greinilega voru þau að trufla dádyr en það varð hrædd og hlóp í burtu. Því miður var Anna Xing nákvæmlega í flóttaleiðinni dyrsins og hlóp dádyrið bara beint á hana. Lysingin segir að dádyrið skall með nefið á enninu á Önnu Xing sem datt en dýrið hlóp bara yfir hana og í burtu.
Leikskólakennarinn sem var næst og sá þetta, segir, að þetta leit frekar skelfilegar út en sem betur fer slapp Anna Xing með einungis bláan blett á önninni og ekki meira. Ég veit ekki hvernig dádyrið hefur það núna en Anna Xing virðist hafa meltað þetta bara fínt.
Einar kom svo með skemmtilegt komment við þetta yfir kvöldmataborð: allavega er ekki hægt að segja að barnið komast aldrei í nánari kynni við dýrin á nátturinni!

En annars er það að frétta að hér gengur lífið bara sin vanagang. Adventan var frekar erfið, mikið að gera, mikið órólegheit og stress í gangi en jólin sjálf voru bara fín.
Svo vorum við aftur á Turrach hjá Barbaru, Davið, Jakob og Magdalenu en Irmi vinkona okkur mætti líka eins og vanalega. Þetta var eins og alltaf rosalega gaman, börnin eru ótrulega fín saman, bara ekkert mál hjá þeim og Anna Xing litur mikið upp til Magdalenu sem er nú 1,5 árs eldri og hún. Við vildum koma Önnu Xing í skíðaskóla en þar sem Magdalenu for ekki í þennan skóla var ekki hægt að halda Önnu Xing þar lengur og hálfan dag og það bara með ymsum triksum. En ég gaf svo eftir það sem hún var eiginlega búin að læra það sem ég vildi að hún lærði og er núna hægt að taka hana bara með eiginlega hvar sem er nema of brattar brekkur eða ef það er of mikið ís. En hún stendur rosalega vel, hefur got stjórn á sér og skíðum og kann að bremsa og um það snýst málið. Það eina er að ég er oftast fyrir aftan henni til að koma í veg fyrir að það verður keyrt yfir hana, þetta stressir mig svolitið og allt of mörg slys núna sem eru þannig að eitthver keyrir yfir eitthvern en vil ég þá frekar að það er keyrt á mig heldur Önnu Xing.

Eva Dóra og Einar voru svo oftast í kringum buðstaðin á Turrach og voru þau að renna sér á snjósleðinn (svona plastbob) eða Einar setti skiðin á Evu Dóru sem jú, kann að standa, heldur jafnvægi, getur aðeins hlappað með skíðin á fótum og stendur með hendurnar á hnjám og rennur sér nokkrar metur „niður brekkunni“ sem má nú varla vera brekka. En henni finnst þetta gaman og er það goð byrjun meðað við hún er enþá tveggja ára (allavega í nokkrir dagar til viðbótar).

Svo um daginn forum við að skauta. Þetta gerðist eiginlega alveg óvart, vildum fara að renna okkur á bob en það var of litið snjó og Lili vinkona hennar Önnu Xing stak upp á skautaferð við bæjartjörnin en ísin er nog þykk. Anna Xing hefur aldrei áður staðið á skautum en var ég nýbúin að kaupa skauta fyrir hana sem hún vissi ekki af. Þannig að, ég setti á hana skauta en Margarita Lilimamma for með hana á ísinn en vissi hún ekkert af því, að Anna Xing kunni þetta ekkert. Og hvað gerðist: barnið byrjaði bara að renna sér á skautum, að skauta bara eins og engill. Hún datt varla (minna og Lili sem for oft í fyrra líka), helt jafnvægi, kunni að koma sér áfram og stoppa og fara hringir. Alveg ótruleg þessi dama!
Ég var svo með smábarna skautar fyrir Evu Dóru líka, svona dæmi þar sem eru 2 jarn við hvert fót og þannig gat hún haldið jafnvægi og labbað aðeins um og hafði bara gaman af því. En svo vildi hún endilega fara og skoða fuglabúrin sem eru þarna í listagarðinum og dunduðum við okkur dálitið stund þarna á meðan Anna Xing og Lili voru að skauta undir eftirlit hennar Margaritu.

Dagana eru rosalega gaman með þessum frábæjum stelpum okkar en næturnar aðeins minna. Staðan er þannig að Anna Xing þarf að fara að pissa á hverju nótt og vill hún þá koma yfir til okkar. Oft er hægt að tala hana til og hún fer aftur í rúmið sitt bara til að vakna svo oftast svona milli 2 og 3 og þá kemur hún yfir til okkar. Gott og vel ef hún sofna bara strax og sefur. En oft vaknar þá Eva Dóra smástund seina, sé að systur sín er farin og vill koma líka. En daman getur ekki bara staðið upp og komið yfir heldur situr hún í rúminu sínu og öskrar hátt eftir okkur til að sækja sig. Gott og vel, hún er sótt og kemur líka og bara fínt ef hún sofna líka strax. EN: oftast vekur hún Önnu Xing við að öskra og hvoru þeirra sofna svo strax aftur og getur þetta tekið allt að 2 tímar (sem sagt frá 2/3 til 4/5) þangað til að dömurnar eru nógu þreyttar aftur til að sofna. Það skiptir engu máli hvort við höldum þeim hjá okkur (og þólum bröltið sem er þá í rúmini og spjallið og hlátur og…) eða hvort við færum þær í sitt herbergi, þá er enn meira hlegið og talað saman eða skammast í hvor öðru. Útkoman er: þreyt börn og en þreyttari foreldrar.
Og svo burt séð frá því að ég fær frekar illilega í bakinu ef ég er svona klesst milli 2 börnum og get varla hreyft mig.
Við erum að reyna að finna lausn á málinu en Anna Xing heldur því stift fram að þegar hún vaknar á nóttinni þá er rúmið hennar svo rosalega kalt en hlyt hjá mér….ekki furða, hún notar sængin frekar til að sofa á því heldur undir því….

Jæja, ætti ég ekki að fara að halda áfram að vinna eða fara að sofa því að í siðasta nótt voru stelpurnar að ná nýt met enda voru þær vakandi frá 3 til 6! Og ég þarf að fara á fætur í fyrramálið ekki seina og kl. 5. Sem sagt: goða nótt!

Schreibe einen Kommentar

Diese Website verwendet Akismet, um Spam zu reduzieren. Erfahre, wie deine Kommentardaten verarbeitet werden.