5 ár siðan….
… við fengum SIMTALIÐ fræga þar sem okkur var tilkynnt að það biður stelpu eftir okkur í Yizhou sem við ættum að sækja. Ég var á Fosshótel Reykholt þann dag á kynningarfund þegar símtalið kom og þó að ég vissi að ég ætti von á þeirri simtal hitti mig þetta samt í mark. Ég var búin að tala við Guðrún frá ÍÆ fyrr þann dag til að spyrja hana hvort við Einar mættum fara á símalaus svæði um páskar (sem var okkrum dögum seina) en hún sagði mér að við mundum öruglega fá símtalið fyrir páska…en hún sagði ekki, að það væri von á samtalið þann dag. Ég for svo strax úr skrifstofu til að kaupa mér band til að hafa símann hanganði um hálsin hjá mér í staðinn fyrir að hann liggi alltaf eitthver staðar.
Svo kom samtalið seinipart dagsins, sidegis.
Ég man þegar Guðrún sagði: ég er að horfa á mynd af fallegu stelpu. Svo kom afmælisdaginn hennar en Guðrún varð að reikna fyrir mér hvað stelpan væri gömul því ég gat það ekki. Svo hringði ég í Einar, grátandi og hlæjandi samtímis og færði honum fréttirnar. En svo varð ég að komast ofan úr Borgarfirðinu til Reykjavík þannig að ég labbaði bara inn í salinn með tugum manns í, stoppaði ræðu hans Renatos, tilkynnti að ég var að fá upplýsingar um barn og bað Renato um bíllinn hans til að keyra suður. Þetta var sko svolitið skrautleg ferð. Ég hringði í mömmu úr bílnum en svo einbeitti ég mig á því að keyra eins hratt og hægt væri án þess að drepa mig.
Svo hittumst við Einar fyrir framan skrifstofu ÍÆ og fengum loksins að sjá myndir hjá Guðrúnu sem lét okkur líka fá upplýsingar, kort hvar barnið ætti heima og allt annað. Að sjálfsögðu skrifuðum við strax undir skjalið að við vildjum jú ættleiða þetta barn og forum svo heim.
Meira man ég ekki þann dag, bara að biðin þangað til að við máttum sækja hana 5 vikum seina var LÖNG.
Elsku hjarta Anna Xing, mikið erum við pabbi fegin að þú valdi okkur sem fjölskyldan þín, að þú fannst okkur og við þig.
Category: Almennt-General, Dagbók Önnu