Beijing
Þá erum við loksins komin til Kína. Flugið gekk bara vonum framar. Það var litið bókað í vélinni og við gátum dreyft okkur, við Einar vorum með 4 sæti fyrir okkur sem var alveg frábært. Skoðuðum eina mynd og borðuðum en reyndum svo að sofa sem gekk svona bærilega, kanski ekki allt of vel en allavega var hægt að sofa smá. Tíminn leið eiginlega hratt og allt í einu vorum við að lenda í Beijing. Fékk SMS að mamma mín væri líka lent.
Komumst vantræðalaust í gegnum „immigration“ og þegar við, sem síðasta parið hópsins, voru komin í gegn og að færibandinu þá var allur farangurinn kominn og fólkið úr hópnum okkar var búin að taka allt saman, líka fyrir okkur.
Við útganginn hittum við svo farastjórarnar okkar, Phoebe og Katherine, 2 kínverskar stúlkur sem verða með okkur allan tíma. Þær komu okkur á hótelið en svo var restin af deginum frí. Við Einar og mamma forum aðeins að kanna umhverfið hótelsins og duttum strax inn í Starbucks kaffihús – ekki mjög kínversk byrjun á ferðinni en okkur vantaði smá kaffi beint í æð. Svo forum við að finna supermarket til að kaupa vatn (ekki má drekka kranavatn). Svo löbbudum við yfir torgið við lestarstöðinni þar sem mikið af fólk var enda frídagar núna í Kína og mikið af fólk á ferðinni. Mjög spennandi.
Svo hvíldum við okkur aðeins og svo fór hópurinn út að borða á ekta kínverskan veitingarstað nálegt hótelinu. Phoebe var búin að panta fyrir okkur allskonar réttir sem voru allar mjög góðir – en okkur fannst mest furðulegt að það fylgði ekki hrísgrjón með matnum!
Núna erum við frekar þreitt og ætlum að koma okkur í hátttin í okkar fína herbergi sem er eiginlega svíta, höfum stóra stofu og svo svefnherbergi – enda erum við á 4 stjörnu hóteli!
Ef það rignir ekki förum við á múrina á morgun, annars í forboðnu borgina. Erum ansi spennt.
Category: Almennt-General, Ferðin til Kína