Komin til Kína

Þá erum við loksins komin til Kína. Flugið gekk bara vonum framar. Það var litið bókað í vélinni og við gátum dreyft okkur sem var alveg frábært. Flesgt okkar horfðu á eina mynd og borðuðum en reyndum svo að sofa sem gekk svona bærilega, kanski ekki allt of vel en allavega var hægt að sofa smá. Tíminn leið eiginlega hratt og allt í einu vorum við að lenda í Beijing.
Komumst vantræðalaust í gegnum “immigration” og farangurinn kom mjög hratt.
Við útganginn hittum við svo farastjórarnar okkar, Phoebe og Katherine, 2 kínverskar stúlkur sem verða með okkur allan tíma. Þær komu okkur á hótelið en svo var restin af deginum frí. Sum okkar hvíldu sig en flestir foru nú að kanna aðeins umhverfið hótelsins sem stendur rétt á móti aðal lestarstöðinni í Beijing og það eru svo nokkrir verslunarmiðstöðvar í kringum hótelinu sem er á 10 hæðum.
Hópurinn hittist svo aftur klukkan 6 og for út að borða á ekta kínverskan veitingarstað nálegt hótelinu. Phoebe var búin að panta fyrir okkur allskonar rétti sem voru allar mjög góðir – en okkur fannst mest furðulegt að það fylgdi ekki hrísgrjón með matnum!
Núna erum við frekar þreytt og ætlum að koma okkur í háttin í okkar fína herbergi sem er eiginlega svíta, höfum stóra stofu og svo svefnherbergi – enda erum við á 4 stjörnu hóteli!
Ef það rignir ekki förum við á múrina á morgun, annars í forboðnu borgina. Erum ansi spennt.
Í dag var ca 20 stiga hiti og næstum því logn en skýjað – eða er það bara mengunin hér í bænum, það er erfitt að segja. Allavega söknum við friska og hreina íslenska loftsins það er vist.

5 thoughts on “Komin til Kína

  1. Hæ hæ Einar og Susanne

    Við erum nú að stelast að fylgjast með ykkur.. Súper að fá svona beint í æð…Hver þarfnast póstkorta…..:-)
    Gott að heyra að allt hafi gengið vel…
    Hlökkum til að heyra meira… og ekki vissi ég að mamma þín kæmi líka.. Frábært..
    kv fyrir hönd Fossstelpnana
    Vala

  2. Sælir Kínafarar.
    Ég er systir Axels og fékk að fylgjast með hjá ykkur. Gott að heyra að allt genur vel hjá ykkur. Bið að heilsa og óska ykkur öllum góðrar ferðar og ánægjulegrar heimferðar.
    Lína

  3. Hæ Susanne & Einar
    frábært að heyra að ferðin hafi gengið vel og þið hafið fengið svona súper veður í Köben og fyrsta daginn í Peking! Svo nú eruð þið semsagt á Múrnum eða í Forboðnu Borginni! Verður nú spennandi að lesa hvernig ykkur leist á það! Maurice biður að heilsa, hann er hérna að taka lítinn meinlausan vírus úr tölvunni minni sem ég fékk bara daginn sem þið fóruð til útlanda og voruð ekki hér hahaha, er það ekki týpískt.
    En við byðjum að heilsa, gangi ykkur vel 🙂
    Erla

  4. Hæ Axel og Sigurbjörg.

    Gott að vita að allt gengur vel, við hugsum mikið til ykkar. Njótið öll lífsins og ferðarinnar. Hlakka til að sjá ykkur !

    Bjarni og fjölskylda.

Schreibe einen Kommentar

Diese Website verwendet Akismet, um Spam zu reduzieren. Erfahre, wie deine Kommentardaten verarbeitet werden.