5. Maí

Jæja, nú er loksins smá tíma. Sit hér á herberginu til að skrifa og svo verður þessu hent inn á internetið í fyrramálið (um miðnætti að íslenskum tíma) þegar business center opna aftur en á herbergjum okkar er bara hægt að komast á internetið í gegnum símalínu og fæst okkar tilbúin að standa í því.

Í dag, fimmtudaginn 5. maí, var sem sagt góður dagur fyrir okkur. Veðrið var í lagi en reyndar frekar hvasst og kuldalegt fyrir hádegi þegar við vorum á Tianamen torgið og svo í Forboðnu Borginni.

Þessir dagar eru miklar frídagar í Kína eins og alltaf í kringum 1. maí og margt fólk notar vikufríið í að koma til Beijing og var alveg ótrúlega mikið af fólki allstaðar í dag. Það var næstum því endalaust biðröð í kringum “Torg hins himneska friðar” þar sem fólkið vildi fá að sjá grafhýsi Maó.

Eins var staðan í Forboðnu Borginni þegar Phoebe og Catherine, farastjórarnir okkar, voru að leiða okkur í gegnum hallarnar. Þetta eru risastórar hallir og enn stærri torg allt mjög fallega skreytt en rosalega tómlegt. Hins vegar er svo mjög fallegur garður fyrir aftan hallarinnar þar sem keisarinn og fjölskyldur hans (um 5000 manns) gátu leikið sér. En þetta fólk átti um 10.000 þjónar, bæði konur og kynleysinga.

Í hádeginu fórum við á kínverskan veitingarstað Beijing style og fengum aftur alveg rosalega góðan mat, 14 réttir alls. Málið er víst þannig að kínverjar borða vanalega fyrstu réttirnar án hrísgrjóna en fá svo stundum hrísgrjón með seinni réttum en alls ekki alltaf eins og maður heldur.

Síðdegis var svo farið í silki verksmiðjuna enda voru flest okkar ansi spennt að komast þangað. Gaman var að sjá hvernig silki verður til og svo var hægt að kaupa allt sem hægt er að hugsa sér úr silki, fyrsta flokks gæði. Til að hafa langa sögu stutta er hægt að segja bara að kreditkortin voru NOTUÐ.

Svo fengum við stutta hvíld á hótelinu áður og farið var út að borða, að sjálfsögðu aftur kínverskur matur en Phoebe er að reyna að láta okkur smakka mat úr mismundi héröðum landsins og henni tekst það vel. Aftur fengum við alveg frábæran mat og nóg af honum.
Eftir matnum sat fólkið saman á hótelinu og spjallaði og skoðaði myndir dagsins í tölvunni.

Planið er að fara á Kínamúrinn á morgun og okkur er lofað góðu veðri.

Það stendur til að það verða settar inn fleiri myndir í dag.

One thought on “5. Maí

  1. Gaman að lesa hvað allt gengur vel – svona verður þetta bara allan tímann!!! ;O))
    Hugsa til ykkar
    Svana
    ps. í dag er síðasti dagurinn minn hér á skrifstofunni – skrítið!!!!!

Schreibe einen Kommentar

Diese Website verwendet Akismet, um Spam zu reduzieren. Erfahre, wie deine Kommentardaten verarbeitet werden.