Kínamúrinn
6. maí fórum við loksins á Kínamúrinn. Á leiðinni þangað var reyndar stoppað í Jade verksmiðju og eftir að okkur var sýnt hvernig Jade er slípað gátum við keypt í fyrirtækisversluninni og voru mjög fallegar gripir þar.
Múrinn sjálfur er alveg frábær. Hann liggur upp og niður fjöll, alveg einstakt að sjá hann “in real”. Að sjálfsögðu hlupum við Einar upp á hæsta turninn á okkar svæði og það var mjög gaman, bara ansi margar tröppur sem við þurftum að fara upp. Tröppurnar eru mjög misháar, frá því að vera bara nokkrar centimetrar upp í hálfan metra hár. Uppi er svo sem minna vandarmál en að komast niður gekk verra og hnén ekki alveg ánægð með meðferðina.
Mikið af fólk var að fara upp múrinn, jafnvel eldgamallt fólk á slitnum skóm og virðast kínverjar sjálfir jafn hrifnir af honum og við.
Svo fórum við til baka til Beijing og borðuðum í einskonar ferðamannamötuneyti bærilegan mat og svo var skoðuð perluverksmiðjunni sem er rétt hjá.
Síðasti punktur á dagskránni var leikhúsferð og fengum við að sjá 1 klukkutíma af alveg frábæjum fjölleikum þannig að maður náði varla andann yfir öllum þessum kúnstum.
Kvöldsins nutum við með rólegum kvöldmat á hótelinu og svo bara smá spjall og Einar var í tölvunni það sem eftir var.
Bara svona til gamans er hægt að geta að við létum skipta um glerið í gleraugum hans Einars og bara glerið (2 stykki) kostar innan við 3.000isk!
Planið fyrir daginn í dag er að fara í “Lama tempel” og svo í ferð um gamla hverfið í Beijing.
Category: Almennt-General, Ferðin til Kína