Kínamúrinn

Kínamúrinn

6. maí fórum við loksins á Kínamúrinn. Á leiðinni þangað var reyndar stoppað í Jade verksmiðju og eftir að okkur var sýnt hvernig Jade er slípað gátum við keypt í fyrirtækisversluninni og voru mjög fallegar gripir þar.
Múrinn sjálfur er alveg frábær. Hann liggur upp og niður fjöll, alveg einstakt að sjá hann “in real”. Að sjálfsögðu vildum við öll ná hæsta turninum á okkar svæði því að Phoebe sagði okkur að bara menn sem komust upp væri „alvöru menn“. Það var mjög gaman, bara ansi margar tröppur sem við þurftum að fara upp. Tröppurnar eru mjög misháar, frá því að vera bara nokkrar centimetrar upp í hálfan metra hár. Uppi er svo sem minna vandarmál en að komast niður gekk verra og hnén ekki alveg ánægð með meðferðina. Það eru 6 menn / konur sem eru greinilega „alvöru menn“ í hópnum.
Mikið af fólk var að fara upp múrinn, jafnvel eldgamallt fólk á slitnum skóm og virðast kínverjar sjálfir jafn hrifnir af honum og við.
Svo fórum við til baka til Beijing og borðuðum í einskonar ferðamannamötuneyti bærilegan mat og svo var skoðuð perluverksmiðjunni sem er rétt hjá.
Síðasti punktur á dagskránni var leikhúsferð og fengum við að sjá 1 klukkutíma af alveg frábæjum fjölleikum þannig að maður náði varla andann yfir öllum þessum kúnstum.
Kvöldsins nutum við í rólegheitum, sumir fóru út að borða eða fá sér smá nudd, aðrir reyndu einfaldlega að ná smá svefni sem gengur svona misjafnlega vel. Það eru að hluta til hörðu rúmum, hávaðinn frá lestastöðinni eða bara stressið sem gerir fólk erfitt að sofa en við látum smá svefnleysi ekki trufla okkur og höldum áfram að njóta þetta spennandi land.

Planið fyrir daginn í dag er að fara í “Lama tempel” og svo í ferð um gamla hverfið í Beijing.

2 thoughts on “Kínamúrinn

  1. Flottar myndir og frábært að fá að fylgjast með ferðalagi ykkar, gangi ykkur allt í haginn, bið sérstaklega að heilsa Sigurbjörgu og Axeli, það verður frábær stund þegar þið fáið að sjá dætur ykkar á mánudaginn.
    Kveðja Guðbjörg

  2. Frábært að fá að fylgjast með ykkur í þessari mikilvægu ferð. Hlakka til að hitta ykkur Sigurbjörg og Axel þegar ég kem í sumar.
    Bestu kveðjur til ykkar allra og gangi ykkur allt í haginn………
    ……ein sem fylgist spennt með frá Florida………..
    Kv.
    Essý og co

Schreibe einen Kommentar

Diese Website verwendet Akismet, um Spam zu reduzieren. Erfahre, wie deine Kommentardaten verarbeitet werden.