Beijing – gamall og nýtt

Við byrjuðum daginn (laugardagur 7. maí) með heimsókn í Lama Temple sem er mjög fallegt budda klaustur sem er mörg hundrað ára gamallt. Mikið af fallegum budda styttum og öðrum fígúrum og skreytingum. Það eru tré þarna og smá torgir milli hallanna og þetta alveg heimur út af fyrir sig með rólegt yfirbragð.
Svo var farið í gamla hlut Beijing og okkur var ekið um í þríhjólum í gegnum þröngar götur, krappar beygjur og yfir rauð ljós – en allt gekk vel. Við fórum í svo kalla Hú Tong (ég held að ég man það rétt) sem er lágar húsbyggingar þar sem smá garður er í miðjunni en svo 3 hús (eiginlega bara 1-2 herbergi hvert) og 1 hlið, sameiginlegt bað og eldhús. Í húsinu sem við heimsóttum býr stór fjölskylda og okkur var boðið í ekta heimilismat sem kona hússins bjó til í smá eldhús með tveimur hellum – við vorum 21 manns með farastjórunum! Maturinn var alveg ótrúlega bragðgóður og fengum við 5 eða 6 réttir, hver betra heldur en sá næsti.
Næst var okkur ekið á ekta kínverskan markað, kannski svipað og kolaportið en þar var selt allskonar dót og mikið af ávöxtum, grænmeti og kryddi.
Svo var stoppað á smá torgi þar sem eldri konur voru að sýna okkur þjóðdans og voru konur hópsins kvaddar til að taka þátt sem var gert.

Stærri hlutur hópsins vildi svo endilega komast í raftækjabúð og fór Phoebe með okkur þangað. Þetta var alveg annar heimur, nýja ekta Kína eins og maður ímynda sér. Þarna voru mörg háhýsi og margar búðir á hverju hæð, algjört draumur fyrir fólk sem vill kaupa raftæki.

Kvöldsins nutum við í rólegum heitum, fengum okkur kvöldmat á kínverskum veitingarstað hótelsins og það var mikið spjallað og spekúlerað.

Á morgun (sunnudagur 8. maí) er verður ferðadagur, við förum af stað klukkan tíu frá hótelinu á flugvöll og þaðan flogið til Nanning sem er víst yfir 4 klukkutíma flug.

Herbergið okkar snýr að torginu fyrir framann aðallestarstöðina Beijings og gaman er að fylgjast með lífið á torginu. Síðastliðna daga er búin að vera nær endalaust straumur af fólki inn og úr lestastöðinni. Reglulega koma einhverjar tilkynningar í gegnum hátalarakerfi sem glamra yfir allt torgið. En svo er það umferðinni á götunni meðfram torgið. Á degi er mikið af leigubílum sem biða tiltölulega skipulega eftir farþegum og svo 3 akreinar fyrir umferð en 1 akrein svona til að leigubílar komast í burtu. En á kvöldið fer allt úrskeiðis. Það standar leigubílar í 2-3 akreinum, bakka á móti umferðinni, stundum komast venjulega bílar varla farm hjá. Stundum kemur löggan og rekur bílanna í burtu en þeir fara svo strax á sinn stað um leið og löggan er farinn. Þar sást rútur og leigubílar taka bara einfaldlega U-beygju á móti umferðinni og aka á vitlausri akrein að næstu gatnamótum þar sem þeir fara loks inn á þá réttu. Og innan um allt þetta sniglast reiðhjól og gangandi vegfarendur í myrkrinu. Eða maður á reiðhjól með hund lausan hlaupandi í kringum hjólið, fram og til baka.

Schreibe einen Kommentar

Diese Website verwendet Akismet, um Spam zu reduzieren. Erfahre, wie deine Kommentardaten verarbeitet werden.