Loksins
Þetta var nú meira dagurinn í dag. Morguninn fór í pappírsvinnu, við þurftum að undirskrifa fullt af skjölum og setja svo fingraförin okkar líka. Til að stytta biðina þá fórum við mamma í smá verslunarferð og keypti ég flotta og sæta skó á hana litlu. Einar var í tölvunni á hótelherberginu að setja inn myndir enda er hann ennþá hálf slappur í maganum. Samt fengum við okkur svo smá hádegismat saman en það var nú ekki mikil matarlist í mér.
Svo klukkan 15:30 var farið í “Office for Civil Affairs” þar sem okkur var boðið í móttökusal. Kínverski og íslenski fáninn skreyttu herbergið. Mikill spenna var í hópnum sérstaklega af því að það sást í stelpurnar í næsta herbergi en við Einar kíktum ekki, fyrst og fremst til að halda andlitinu svona til að byrja með. Kona sem vinnur fyrir ættleiðingarskrifstofuna hér í Nanning hélt stutta ræðu og svo voru nöfnin stelpnanna kölluð upp eitt eftir annað. En Alice, farastjórinn okkar, hjálpaði okkur með því að segja líka herbergisnúmerið okkar.
Fu QingXing var fyrsta nafnið sem var kallað upp og allt í einu kom kona með barn í bleikum fötum inn og rétti okkur djúpsofandi barn og Einar tók við henni sem svaf bara áfram. Hún svaf á meðan við Einar vorum grátandi að dást að henni því að hún er svo falleg. Hún svaf á meðan fullt af myndum voru teknar af henni, amma fékk að skoða hana, fullt af grátandi börnum í kringum hana, ég tók hana og hélt á henni – og hún litla bara svaf eins og engill. Hún svaf því miður líka þegar barnsfóstran kvaddi hana. En svo vaknaði hún hægt og rólega og starði lengi vel á Einari sem hélt þá á henni. Svo mat hún mig líka lengi vel, svo aftur hann Einar, svo aftur mig – en hún grét ekki. Bara horfði stórum augun á okkur. Svo bar ég hana út í rútunni (næsta ættleiðingarhópur var að koma inn…) og hún horfði bara athugul í kringum sig.
Á hótelinu okkar beið ljósmyndari sem tók fyrstu fjölskyldumyndina og hún Anna Xing brosti bara í myndavélina!
Svo loksins máttum við fara með hanna inn á herbergi og ég setti hana bara á rúmið okkar og við buðum henni allskonar leikföng og hún fór bara að leika sér, svo horfði hún aftur á okkur og stundum brosti hún.
Klukkan 18:30 for hópurinn á veitingarhús rétt hjá sem er greinilega vön að fá svona ættleiðingarhópar enda fengum við strax heitt congee, einskonar rísgraut sem stelpurnar eru vanar að borða og gerðu það líka núna. Svo tók Einar hana upp og syndi henni veitingarhúsið og fólkið á meðan ég reyndi að borða smá sem gekk nú ekki allt of vel, hafði enga matarlist. Á leiðinni heim þá hélt ég á henni og hún horfði bara stórum, þreyttum augun á mig og svo var hún allt í einu sofnuð.
Rétt fyrir níu kom barnalæknir og skoðaði hana en hún er fín og hraust, vantar bara smá kalsíum og svo er hún með ör eftir sár á höfuð, var greinilega með smá húðsýking og klóraði sig mikið. En þetta er nú ekkert mál.
Hún svaf eiginlega á meðan skoðunin stóð yfir en við notuðum tækifærið að skipta á henni sem var nú bara tveggja manna verk skal ég segja ykkur. Að sjálfsögðu vaknaði hún og fékk þurrmjólk að borða en barnaheimilið lét okkur fá mjólkurduft sem hún er vön að fá.
Svo sofnaði hún aftur og er alveg ótrúlega sæt hvernig hún liggur í rúminu sínu og sefur.
Við Einar erum yfir okkur hamingjusöm og þakklát fyrir að hafa fengið að eignast hana enda er hún örugglega sætasta og fallegasta barnið sem til er, allavega fyrir okkur.
Category: Almennt-General, Ferðin til Kína
Hæ hæ Susanne og Einar, innilega til hamingju með litlu stúlkuna. Kveðja frá öllum á skrifstofunni. Ása, Halli, Dísa og co.
Hæ Susanne & Einar,
Vá hvað fjölskyldumyndin af ykkur er flott! Til hamingju með hana litlu, hún er ekkert smá mikið krútt. Við erum hérna að dást að henni og lesa hvað hún var góð þegar þið tókuð við henni. Byðjum að heilsa og óskum ykkur góðs gengis, Erla og co í söludeildinni
TIL HAMINGJU TIL HAMINGJU MAMMA SUSANNE OG PABBI EINAR…
litla músinn er yndisleg og Einar tekur sig vel út…
kossar og knússar
Vala
Innilega til hamingju elsku Susanne og Einar…..
Það er alveg yndislegt að sjá litla krúttið ykkar loksins í örmum foreldra sinna
og það er eins og hún hafi verið með ykkur alla sína tíð….. yndislega fallegar myndirnar af ykkur fjölskydunni
Gangi ykkur allt í haginn….
ástarkveðja
Steinunn Dúa og Kristín
Elsku nýbökuðu foreldrar
Innilega til hamingju með að hafa loksins gullmolann hjá ykkur. Hún er alveg yndislega falleg og hamingjan skín úr andliti hennar.
Njótið foreldrahlutverksins í botn og gangi ykkur vel.
Servus!!!!!
Hrönn