Nýtt líf
10. maí: Anna Xing er ellefu mánaða í dag – og algjört krútt.
Hún svaf vel síðastu nótt en Einar og ég sváfum lítið, vorum bara of spennt. Hún vaknaði um hálf sex sem var svo sem allt í lagi, við áttum hvort sem er að mæta hálf níu í móttökunni og með morgunmat og skipta á bleyju og allt þetta fyrir óvant fólk var hvort sem er betra að hafa aðeins lengra tíma.
Í dag var farið aftur í Office for Civil Affairs þar sem við vorum spurð nokkra spurningar um hvort við viljum ættleiða barnið, yfirgefa hana aldrei og svona og eftir það fengum við plagg upp á það að við erum viðurkenndir foreldrar hennar.
Svo var farið á lögfræðistofu þar sem við vorum aftur spurt sömu spurningar og aðeins meira eins og hvað við erum með í laun á ári og svona. Eftir undirskrift þar á staðnum erum við löggildir foreldrar hennar – og MJÖG ánægð með það.
Aftur á hóteli fengum við tækifærið til að hitta forstöðumann barnaheimilisins og tvær fóstrur og hjúkrunarkonu og gátum spurt nokkra spurninga. Við fengum svo sem ekki mikið nýtt að vita en ég gat gefið Önnu Xing tækifærið að sjá fólkið sem hefur hugsað um hana í 11 mánuði aftur, þær heldu á henni aðeins og gátu kvatt hana og hún þær og svo fengum við hana aftur og hún var nú bara sátt við að vera hjá okkur, brosti bara sínu blíðasta – og sofnaði. Gott, þannig fengum við líka smá svefn og ekki veiddi af. Mamma mín vakti okkur svo með smá sætindi sem hún var búin að ná í úr bakaríinu rétt hjá og eftir það fengum við 4 okkur smá gönguferð. En það var alveg rosalega heitt úti, yfir 30 stiga hiti og mjög mikill raki, þetta var í alvöru eins og að ganga á vegg. Hún Anna Xing sat í bakpokanum sínum og var alsæl með lífið og tilveruna, horfði bara stórum augum á allt sem var þar. Við fórum í almennings garð rétt hjá, þar er stór tjörn og fórum við einu sinni í kringum hann. En hún Anna Xing varð svöng á leiðinni og fékk sina fyrsta mátið svona á ferðalagi og gekk bara vel, þannig það virðist ekki vera mikið mál að ferðast með henni – vonum við allavega.
Svo sofnaði hún aftur og þar með gátum við fengið okkur kvöldmat í ró og fríði, hún sat bara í kerrunni hjá okkur og svaf þangað til að við vorum búin, þá vaknaði hún og fékk hennar congee (hrísgrjónagrautur). Síðan er hún búin að vera sæt stelpa að leika sér á rúminu með pabba sem er frekar syfjaður.
Hún er algjörlega draumadís og við erum ekki að ná því hvað við erum heppin með hana. Einar er rosalega sætur pabbi, þið ætti að sjá hann!
Við þökkum ykkur fyrir hlý orðin í gestabókina!
Category: Almennt-General, Ferðin til Kína