Sveitaferð – Zhuang þorp
Anna Xing var aftur mjög góð stelpa og svaf alla nóttina til rétt fyrir hálf átta. Hún var reyndar svolítið lítil í sér fyrir hádegi því að hún er að taka tennur. En svo seini partinn var hún mjög hress og skemmtileg, átti bara aðeins erfitt með að sofna núna rétt áðan en eftir einn pela enn fór þetta allt að ganga – en ekki furðulegt að hún skuli vilja drekka svolítið vel, það er heitt hérna og hún svitnar mikið, bæði ef hún er í “skoðunarferð” í bakpokanum sínum eða að hamast hér á rúminu okkar.
Í dag fórum við í sveitaferð til að skoða hvernig fólk af Zhuang ætthóp lifir en það má reikna með því að stelpurnar okkar í hópi 11 séu sveitarstelpur af Zhuang uppruni. Það er víst mikill fátækt í sveitinni og það leyndi sig ekki þegar við skoðuðum smá þorp og fengum jafnvel að fara inn í “hús”. Manni liður nú bara illa að labba þarna um í góðu fötunum sínum með dýra myndavél um hálsinn og barn sem er jafnvel fædd hér í þorpinu í fanginu. En fólkið í þessu þorpi er greinilega vant að fá svona heimsókn af ættleiðingarhópum því þau veiddu okkur varla athygli.
Landslagið þarna í kring var ótrúlega fallegt, grænt með smá hólum á milli og mikill gróður.
Við forum líka í smá “cultural park” þar sem Zhuang fólk sýndi smá dans og við fengum að læra um þeirra uppruna, sáum smá safn og fengum að smakka nokkrar þjóðarréttir, bara smá snakk. En meira var ekki hægt hvort sem er því að það var ótrúlega heitt, stelpurnar órólegar og ofan á það nokkrir villir apar sem voru að reyna að stela matnum en leiðsögumaðurinn okkar var frekar stressuð því að aparnir eru víst ekki mjög kurteisir og geta meitt fólk.
Þetta var ekki einföld en mjög nauðsynlegt ferð og gott fyrir okkur að hafa séð þetta.
Svo fórum við til baka og borðuðum hádegismat á hótelinu, svo voru passamyndir teknir og eftir það fékk Anna Xing sér nú bara smá lúr, Susanne og mamma hennar líka en Einar var að brauka í tölvunni. En þegar allt fólk vaknaði þá sofnaði hann Einar.
Þannig að við Anna Xing forum bara einar í smá rölt í kringum hverfið hér, vöktum mikla athygli og fólkið var stöðugt að brosa að okkur, sagði eitthvað sem hljómaði vel eða starði bara á okkur.
Mér finnst alveg frábært að labba hér, umkringt heimafólki og skoða lífið og búðirnar. Í dag sá ég nokkrar búðir í röð þar sem selt voru blikkljós fyrir löggubílar og anna lögregludót – en ég veit ekki hvort maður þurfti að sína fram leyfi til að geta keypt, ég þorði ekki að reyna enda löggustöð rétt hjá.
Eftir kvöldmatnum þá var Anna Xing nú ekki á því að sofa þó að tími væri komin til, var bara í bestu skapi en samt mjög þreytt. En loksins, eftir annan pela þá sofnaði hún – enda ekki furðulegt að hún skuli vilja drekka dálitið mikið í svona hita og miðast við hvernig hún er að hamast.
Skondið, hún er fædd á ár apans og stundum gefur hún akkúrat svona “apahljóð” frá sér, hún litur út eins og lítið sætur api og er jafn lipur í liðunum. Núna sefur hún til dæmis með fæturna í fullum spíss!
Á morgun er síðasti dagurinn okkar hér í Nanning, siðasti möguleiki að sjá meira og læra meira um heimaslóðir hana sætu Önnu Xing okkar.
Category: Almennt-General, Ferðin til Kína