Síðasti dagurinn í Nanning
Hún litla okkar vakti okkur um hálf sex í morgun og var fram yfir morgunmat og blund á eftir, frekar lítil í sér – alveg eins og síðasta daga og bendir þetta til þess að hún er kannski ekki morgunhani. En svo var hún hress og kát og það svo að það var ótrúlega heitt og við vorum mikið á ferðinni og hún fékk varla svefn síðdegis. En hún sofnaði svo kl. 19:00 og vaknaði rétt áðan bara nógu lengi til að ég gat skipt á bleyju, klædd hana í náttföt og gaf henni svo að drekka en þá var hún eiginlega sofnuð aftur og drakk bara sofandi held ég.
En í dag fórum við að skoða fallegan garð og klifruðum upp á níu hæða útsýnisturn en þaðan var alveg frábært útsýni yfir Nannig og svæðið í kring. Svo skoðuðum við skemmtilegt Buddha klaustur. Eftir það var farið á veitingarhús þar sem við fengum ekki bara alveg frábæran mat heldur líka sýningu með þjóðsöngvum og þjóðdönsum.
Eftir matnum var farið heim að hótel og átti fólk að pakka og hvíla sig en við 4 notuðum síðasta klukkutímar í Nanning til þess að fara og heimsækja “Minority Museum” í Nanning. Þetta er skemmtilegt útisafn og við fengum einkaleiðsögumann í gegnum safnið sem sýndi og útskýrði fyrir okkur hvernig misunandi þjóðflokkar hér í Guangxi héraðinu voru að búa áður fyrr. Svo keyptum við nokkrar handgerðar munir sem tilheyra Zhuong þjóðflokk en Anna Xing tilheyrir líklegast þeim.
Við vorum í einn og hálfan klukkutíma í safninu og eftir það vorum við gjörsamlega búin að vera úr hita og þreytu en Anna Xing svaf reyndar helmingnum af tímanum en samt. Þetta var frekar erfitt fyrir hana litlu.
En svo stóð hún sig samt vel í hópmyndatökunni en sofnaði eiginlega áður við gátum gefið henni almennilegan kvöldmat. Það er víst ekki svo einfalt líf að vera dóttir okkar.
Við fengum kínverska vegabréfið hennar í dag, nú vantar bara Schengen vegabréfsáritun til að geta komið með hana heim til Íslands.
Við erum búin að pakka öllu niður enda voru töskurnar okkar sóttar klukkan tíu en þær fara aftur í sérbíll út á flugstöð – til hvers skil ég enn ekki en svona er þetta hérna.
Við sjálf förum klukkan 07:00 í fyrramálið og það verður ekki gaman að þurfa að veikja börnin svo snemma…..og við öll smá stressað því að þetta verður fyrsta flugferðinn fyrir stúlkurnar í hópnum.
Það verður erfitt að kveðja Nanning, það er fallegt hér og fólkið sem við hittum var skemmtilegt. Mér finnst ég þurfa sjá meira og læra meira um fólkið hér og svæðið enda býr hér eitthver staðar fólkið sem bjó hana Önnu Xing til fyrir okkur og lét hana frá sér svo að hún gat komið til okkar og bætt okkar líf til muna.
Category: Almennt-General, Ferðin til Kína