Aftur í Beijing
Anna Xing var nú ekki alveg hress með því að vera vakin klukkan hálf sex en hún tók þetta eins og margt annað bara rólega og með góðu skapi. Fengum okkur stuttan morgunmat og svo var farið á flugstöðina, allt í einu vorum við á leiðinni upp í loft og urðum að kveðja Nanning – mjög skemmtileg borg, það hefði verið gaman að eiga meira tíma í Nanning og Guangxi héraðinu.
Önna Xing gekk vel í flugtakinu, hún drakk úr pelanum. En svo var hún ekki hress með það að þurfa að sitja kyrr þannig að við Einar urðum að labba með hana upp og niður ganginn í flugvélinni þangað til að hún sofnaði eftir helmingnum af fluginu. Hún vaknaði bara stutt hágrátandi þegar vélin byrjaði að lækka sig en þá fékk hún homopata remediu og þrýstijafnara sem ég keypti í Osló um daginn og sem US Air Force flugmenn nota víst (var mér sagt). Allavega virkaði þetta fínt og hún sofnaði strax aftur og vaknaði ekki fyrr og við vorum lent.
Svo var keyrt beint á hótel, sama og síðast, en innskráningin gekk ekki nóg vel, aftur var ekkert undirbúið fyrir okkur og eftir um 10 mínútna bið vorum við beðin um að setjast í lobbybarnum og bíða þar. Þetta boðaði ekki gott (og ég hef ekki þolinmæði í svona bull) og við Einar, mamma og Anna Xing fórum bara upp á þriðju hæð þar sem er kínverskt veitingarhús, því að hún Anna Xing var orðin mjög svöng (enda klukkan rétt fyrir tvö) og okkur vantaði “congee” – sem hún fékk og strax var lífið aftur skemmtilegt. Við hin fengum líka mat og þegar ég kom eftir svona hálftíma niður í lobby var akkúrat verið að dreifa herbergislyklunum. Svo var víst búin að loka veitingarhúsinu á 3. hæð, þetta á 5. hæð var líka lokað og ekki mikið af veitingarhúsum sem bjóða upp á “congee” nálegt hótelinu þannig að þetta var nú ekki nóg gott fyrir barnafólk. Svo verð ég að segja að manni finnst það ansi erfitt að skilja að í Beijing sem er orðin vel alþjóðaleg og nútímaleg borg skuli ekki vera hægt að finna fólk sem tala allavega smá ensku til að vinna í móttöku á 4 stjörnu hóteli sem tekur á móti alþjóðalegum gestum. Þetta gerir okkur lífið ansi erfitt.
Því miður fékk Anna Xing eitthvað í magann, hvort það var einhver matur eða stressið síðustu dagar eða flugið í dag veit ég ekki. En henni gekk frekar illa að sofna síðdegis þó að hún væri mjög þreytt. Vaknaði svo hágrátandi (ekki hennar stíll) en sofnaði (grátandi) aftur eftir að hún fékk nýja og hreina bleyju. Hún svaf svo vel næstum því 3 tímar, fékk kvöldmat og var svo að leika sér á stofugólfinu og gerði fyrstu tilraunina til að skríða sem tókst svona misjafnlega vel – hendurnar voru oft fyrir…það er svo gaman að horfa á hana að læra eitthvað nýtt á hverjum degi. Svo for hún í bað, drakk pelann sinn og sofnaði – aftur grátandi. Greyið stelpan, það var mikið á hana lagt síðustu daga og svo er hún núna eftir flugið komin í allt annað umhverfi, öðruvísi hljóð, lykt og svo er henni ennþá illt í maginn. En núna sefur hún og við vonum að hún nái sér yfir nóttina.
Á morgun förum við að skoða sumar höllina og svo er okkur boðið í kvöldmat hjá sendiherranum.
Category: Almennt-General, Ferðin til Kína