Sumar Höllin

Í gærkvöld var ég því miður of þreytt til að skrifa, þið fyrirgefið mér vonandi.

Sunnudagurinn var rétti dagurinn til að fara í sumarhöllina, alveg rosalega fallegur og skemmtilegur garður með fullt af trjám, nokkrum höllum og svo risastórt vatn. Það var gott veður og mikið af Kínverjum á ferðinni sem bætti bara stemninguna. Okkur hópur vakti eins og oftast dálitið athygli, börnin voru skoðuð, mikið brosið að okkur. En við erum svo ofan á þetta líka með Önnu Xing í bakpoka og var hann sérstaklega vel skoðaður en fékk greinilega góða dóma. Í lok ferðarinnar fórum við svo í stutta bátsferð sem var mjög skemmtileg og dóttir okkar sýndi að hún er sko alveg til í bátsferð – sem er svo sem ekki verra í þessari fjölskyldu bæði á Íslandi og svo líka í Austurríki.
Í hádeginu fórum við og nokkrar fjölskyldur á veitingarhús nálegt hótelinu en Anna Xing var orðin vel þreytt og pirruð og fékk allt veitingarhúsið að líða fyrir það. En hún sofnaði loksins og drifum við okkur bara upp á herbergi – en því miður vaknaði hún mjög fljótlega aftur og var frekar pirruð og óróleg það sem eftir var af deginum – enda tönn alveg að koma í gegn, þetta hlýtur að vera sárt. Svo er hún líka greinlega þreytt eftir allt þetta ferðalag, inn í rútu, út úr rútu, sofna, verða vakin aftur….

Um kvöldið var okkur svo boðið heim til Eiðs Guðnasonar sendiherrann hér í Beijing en hann býr í sendiherrahverfi sem er greinilega alveg heimur út af fyrir sig. Það var skemmtileg að fá að koma heim til hans, gaman að sjá íslenska fánan og fá íslenskan-kínverskan mat. Það var góð stemning, stelpurnar höguðu sér vel en um níu leitið var komin tíma til að koma sér og þeim heim sem var gert.

Anna Xing fékk svo að fara í bað sem henni finnst alltaf jafn skemmtileg, svo fékk hún pelann sinn og gat loksins sofnað. Hún er rosalega dugleg stelpa og hefur hingað til sofið alla nætur í gegn og erum við afar þakklát fyrir það.

Schreibe einen Kommentar

Diese Website verwendet Akismet, um Spam zu reduzieren. Erfahre, wie deine Kommentardaten verarbeitet werden.