Mánudagurinn 16. maí

Í morgun var farið í danska sendiráð og sótt um Schengen visa fyrir stelpurnar sem eru jú að ferðast á kínversku vegabréfi. Við vorum búin að fá eyðiblöðin og gátum fyllt þau út á hótelinu, þannig að þetta gekk allt mjög vel fyrir sig, sérstaklega af því hún Phoebe gerði þetta eiginlega allt fyrir okkur. Þær Phoebe og Catherine sem eru farastjórarnir okkar standa sér mjög vel í svona málum, erum mjög duglegar að skipuleggja allt og hjálpa okkur, gera fyrir okkur. Gott að hafa þær – svo að þær eiga ekki börn sjálfar og gleyma stundum svona hlutum eins og að við þurfum ekki bara mat fyrir okkur heldur líka barnamat. En ég er hvort sem er alltaf með smá auka congee í bakpokanum bara svona til von og vara. En annars eru stelpurnar mjög fínar.

Á eftir sendiráðinu (við fáum vegabréfin vonandi á morgun til baka, Phoebe sér um þetta) fórum við í tehús og okkur var synt hvernig Kínverjar búa til te og við fengum að smakka og kaupa -sem var gert. Og svo fórum við á fínt veitingarhús þar sem við fengum svo loksins Beijing önd sem var alveg ótrúlega gott, því miður gat ég bara ekki borðað meira. Maður hefði helst vilja geta tekið með í vasann sem við gerðum að sjálfsögðu ekki (því miður).

Eftir að við komum til baka á hótelið fengum við 4 okkur nú bara góðan lúr, Anna Xing var orðin það þreytt að hún svaf nú bara í 3 klukkutímar og vaknaði ekki fyrr en kl. 5 aftur. En þá var komin rigning og fyrirhuguðum göngutúr um verslunargötu frestað til morgundags. Í staðin fengum við okkur kaffi hér hjá okkur en Freyja, Þórir og Berta Ragna komu í heimsókn.
Svo fórum við Einar, Anna Xing og mamma í stutta göngutúr um verslunarmiðstöð sem er rétt við hótel (maður þarf ekki einu sinni að fara út fyrir hús) en ekkert keypt, bara skoðað!
Eftir kvöldmatnum á hótelinu fórum við nú bara upp á herbergi (klukkan orðin 9) og hún Anna Xing fékk aftur að skemmta sér í baðkarinu (ég fer nú alltaf með henni), drakk pelann sinn og sofnaði um leið. Nú vonum við bara að hún verður áfram goð stelpa og sofi alla nóttina. En ef ekki þá verður henni örugglega fyrirgefið því að hún er svo sæt.

Á morgun er síðasti dagurinn okkar hér í Beijing og þannig séð ekkert prógramm, bara frían tíma og viljum við byrja á því að sofa út – ef Anna Xing er sammála okkur sem er nú ekki víst.
En svo viljum við fara í þessa verslunargötu og kannski skoða aðeins meira af Beijing en samt taka daginn rólega enda verður svo miðvikudagurinn nógu erfiður.

Það væri gaman að vera lengur hér í Kína en ég verð nú að viðurkenna að jafnvel mig langar að komast heim enda er hún Anna Xing orðin vel þreytt af ferðalaginu og komin tími til að koma reglu í dagskránna hennar. En það var sérstakt upplifun að fá að koma hingað, ekki bara af því að maður sá margt sem maður hefur ekki séð áður. Ég er sérstaklega hrifin af því hvað skemmtileg og gott flest fólk hér virðist vera, ég hef nú ekki nema bara besta reynslu á þeim. Við sáum mikið af vinalegum andlitum, mikið brosað á móti okkur. Og svo að það er stundum erfitt að flest fólk skilur mann nú akkúrat ekkert (enda tölum við enga kínversku…) þá er samt alltaf reynt að hjálpa manni, stundum jafnvel hringt í einhvern til að fá hjálp í enskunni í gegnum símann. Einu sinni spurðum við mamma konu í verslunarmiðstöð spurning sem hún skildi ekki og við bara þökkuðum fyrir okkur og höldum áfram að skoða búðirnar. Stutt seina kom önnur kona hlaupandi á eftir okkur og spurði hvað við vildum vita og hvernig hún gæti hjálpað okkur – mér fannst þetta nú bara magnað!
En svo finnst mér líka alveg frábært hvað vel umferðin gengur fyrir sér. Ég fór nú nokkuð oft yfir göturnar þar sem MIKIL umferð var en mér var bent á að bara labba rólega en ákveðin af stað og það gekk nú bara mjög vel. Umferðin er ekki svo hröð og fólkið er greinilega mjög varkárt. Jú, það er algjörlega kaos hér í umferðinni en fólkið virðist reikna með því og aka varlega og taka tillit til annarra.

By the way: var ég búin að segja frá því að hún Anna Xing er farin að segja mamma og pabba? Okay, hún er að segja: mamamamamamama og bababababababab…. en stundum, sérstaklega þegar hún vill fá pelann sinn þá kemur greinilega mama út úr henni – kannski heldur hún að mama sé rétta orðið fyrir “ég vil fá pelann minn STRAX!”. Svo er ég að reyna að kenna henni að ef hún vill að skipt verði um bleyju á henni þá á hún að segja (eða helst öskra) “pabba” og þetta er alveg að koma hjá mér – enda er hún sérstaklega skýr stelpa! Allavega er hún sætust og fallegust og gáfuðust og bara einfaldlega best en fyrst og fremst er hún dóttir okkar!

Jæja, nú vildi ég bara kalla á hann Einar til að lesa yfir þetta hér og þýða þetta úr susönnsku yfir á íslensku en hann hefur greinlega farið inn í svefnherbergið og horft á hana Önnu Xing sofa – og hefur sofnað yfir því sjálfur. Hann les yfir þetta þegar hann vaknar og þá fer þetta út á internetið.

Schreibe einen Kommentar

Diese Website verwendet Akismet, um Spam zu reduzieren. Erfahre, wie deine Kommentardaten verarbeitet werden.