Síðasti dagurinn í Kína
Í dag var ekkert opinbert prógramm og við fórum nú bara í verslunargötu að kaupa svona hitt og þetta og meðal annars vídeótökuvél til að geta fest allt sem hún Anna Xing gerir á band.
Svo fóru Einar og Anna Xing á hótelið en mamma og ég í Baihei garðurinn sem mamma vildi fá að sjá og var gaman þar. Svo á leiðinni heim ók leigubílstjórinn fram hjá Tienamen torginu og forboðnu borginni en þar var íslenska fánanum flaggað enda Ólafur Ragnar í landinu.
Svo var planið að pakka sem gekk ekki svo vel því að hún Anna Xing vaknaði fyrir tímann og var ennþá þreytt og vildi sem sagt fá athygli – sem hún fékk að sjálfsögðu.
Í kvöld fór hópurinn saman út að borða á kínverskum veitingarstað hér á hótelinu og voru farastjóranna okkar kvaddar en þær stóðu sig alveg frábærlega.
Núna erum við að ganga frá síðasta hlutum en á morgun byrja ferðin langa en ef allt gengur vel þá lendum við klukkan 20:55 í Keflavík með vélina frá Köben.
Þetta var nú meiri ferðin, bara skoðunarferðir sjálfar mundu duga til að láta þetta vera mjög eftirminnilega ferð. En svo fengum við þessa frábæru gjöf hana Önna Xing okkar og við erum enn ekki alveg búinn að fatta að við skulum allt í einu eiga dóttir, ekki bara dóttir heldur greinilega barn sem er alveg perfekt fyrir okkur og ótrúlega sæt. Þessi ferð er greinilega ævintýri lífsins okkar.
Category: Almennt-General, Ferðin til Kína