Komin heim
Þá erum við komin heim til Íslands. Ferðin var mjög löng og erfið en allt gekk vel.
Við fengum öll fjögra sæta röð í vélinni frá Beijing til Köben og það var frábært því að þannig gátu stelpurnar sofið liggjandi. Börunum fannst flugið greinilega langt en flest gátu þó sofið nokkrar klukkutímar.
Í Köben var akkúrat passlegur tíma til að komast í gegnum vegabréfsskoðun (inn í Schengen svæðið) og svo yfir í flugvél til Íslands. Sú vél var því miður algjörlega fulltbókuð og frekar þröngt. Sum börnin voru sofandi en sum voru bara of þreytt og pirruð til að sofa en samt slapp allt. En foreldrar og börnin voru greinilega jafn fegin að vera lent í Keflavík og bara stutt eftir heim og upp í rúmið. En þegar heim var komið þá voru hjá okkur fullorðna fólkinu rétt tæplega 24 klukkutímar liðinir frá því að við fórum á fætur í Beijing og fæst okkar náðu svefni á leiðinni.
En hetjur dagsins voru enn og aftur stelpurnar sem stóðu sig alveg meiri háttar vel miðað við ferðalagið og allt þetta sem hefur gengið á undanfarnar dagar. Fyrir 10 dögum siðan voru þær á barnaheimilið í Yizhou og stærsta ferðalagið þeirra þá hefur væntanlega verið „ferðin“ milli herbergja á barnaheimilinu. En á síðustu 10 dögum voru þær að fara frá Yizhou til Nanning, skoða þar heilmikið, svo flogið til Beijing, fleiri skoðunaferðir þar og svo flogið 9 tímar til Köben og strax á eftir 3 tímar til Keflavíkur og svo til Reykjavíkur. Engin furða að þær skulu vera aðeins þreyttar og fara næstu dagar væntanlega bara í að hafa það rólegt heima og venjast nýja umhverfinu.
Þar með er Kínaferð hóps 11 lokið, þetta var frábært ferð, meiri háttar ævintyrið og stelpurnar sem við fengum eru einfaldlega frábærar.
Við þökkum öllum sem hjálpuðu okkar til að fá stelpurnar hér heima og úti í Kína og svo þökkum við ykkur vinum og vandamönnum fyrir öll fallega kommentin og skilaboðin á gestabókina.
Category: Almennt-General, Ferðin til Kína
VELKOMIN HEIM ANNA XING 🙂
Elsku Susanne, Einar og Anna Xing
VERIÐ VELKOMIN HEIM. Gaman að heyra að allt hafi gengið vel… Takið því rólega, hlakka til að sjá ykkur… Litlu músina….:-)
Hafið það sem allra best og njótið þessa að kynnast í réttu umhverfi…
kv Vala